Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 809. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1494  —  809. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Ásbjarnar Óttarssonar
um breytingar á gjaldskrám stofnana ráðuneytisins.


     1.      Hvaða gjaldskrárbreytingar fyrir stofnanir ráðuneytisins hefur ráðherra staðfest á undanförnum 12 mánuðum?
     2.      Hve miklar hækkanir eða lækkanir hafa orðið á gjaldskránum við þessar breytingar?

    Umhverfisráðherra hefur staðfest 13 breytingar á gjaldskrám stofnana ráðuneytisins á undanförnum 12 mánuðum.
     –      Gjaldskrá nr. 446/2012 fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar, leysir af hólmi gjaldskrá nr. 517/2011 með síðari breytingum. Hækkunin er að jafnaði í samræmi við hækkun launavísitölu. Aðgangseyrir að Vatnshelli og Surtseyjarstofu hækkar vegna meiri kostnaðar en upphaflega var gert ráð fyrir
     –      Gjaldskrá nr. 261/2012 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands. Hækkunin er í samræmi við hækkun launavísitölu frá síðustu ákvörðun.
     –      Gjaldskrá nr. 150/2012 fyrir hreindýraveiðileyfi, leysir af hólmi gjaldskrá nr. 106/2011. Breyting á gjaldskrá hreindýraveiðileyfa, sem er gerð að tillögu Umhverfisstofnunar, felur í sér einföldun að því leyti að verð veiðileyfa verður hið sama á öllum veiðisvæðum. Við ákvörðun um hækkun er m.a. horft til verðlagshækkana, kostnaðar vegna aukins veiðieftirlits, auk kostnaðar við rannsóknir á hreindýrastofninum. Meðalhækkun gjaldskrárinnar er 17%.
     –      Gjaldskrá nr. 90/2012, breyting á gjaldskrá nr. 353/1994 vegna mats á umhverfisáhrifum með síðari breytingum nr. 789/1998; 111/2000; 957/2000; 745/2000; 745/2004; 236/ 2006; 974/2008. Hækkunin er í samræmi við hækkun launavísitölu frá síðustu breytingu.
     –      Gjaldskrá nr. 1295/2011 fyrir norræna umhverfismerkið Svaninn, leysir af hólmi gjaldskrá nr. 393/2010. Gjaldskráin er samræmd norrænum gjaldskrám og er færð að kostnaði Umhverfisstofnunar við verkefnið. Hækkunin er á bilinu 36–50%.
     –      Gjaldskrá nr. 1060/2011, breyting á gjaldskrá nr. 517/2011 fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar. Um er að ræða nýja gjaldtöku vegna losunarheimilda o.fl.
     –      Gjaldskrá Landmælinga Íslands nr. 754/2011, leysir af hólmi gjaldskrá nr. 550/2007. Hækkunin er að mestu í samræmi við hækkun launavísitölu.
     –      Gjaldskrá nr. 720/2011, breyting á gjaldskrá Mannvirkjastofnunar nr. 310/2011. Gjaldskrá vegna ljósritunarkostnaðar samræmd við gjaldskrá forsætisráðuneytis, sbr. 12. gr. upplýsingalaga, nr. 50/1996.
     –      Gjaldskrá nr. 719/2011, breyting á gjaldskrá nr. 517/2010 fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar. Gjaldskrá vegna ljósritunarkostnaðar samræmd við gjaldskrá forsætisráðuneytis, sbr. 12. gr. upplýsingalaga, nr. 50/1996.
     –      Gjaldskrá nr. 718/2011, breyting á gjaldskrá Umhverfisstofnunar nr. 517/2011. Ný gjaldtaka vegna námskeiða í leiðsögn með hreindýraveiðum.
     –      Gjaldskrá nr. 654/2011, breyting á gjaldskrá Umhverfisstofnunar nr. 54/2010. Aðeins um efnisbreytingu að ræða, enga hækkun.
     –      Gjaldskrá nr. 517/2011 fyrir verkefni og þjónustu Umhverfisstofnunar. Einkum er um að ræða hækkun í samræmi við launavísitölu frá síðustu ákvörðun. Einnig er gjaldskrá færð til samræmis við önnur Norðurlönd er varðar frumskráningu efna á Evrópska efnahagssvæðinu.
     –      Gjaldskrá sem leysir af hólmi gjaldskrá 1295/2011 vegna norræna umhverfismerkisins Svansins. Í nýrri gjaldskrá eru felldar niður tvær greinar úr eldri gjaldskrá. Gjaldskráin hefur verið send til birtingar.

     3.      Hvaða breytingar á gjaldskrám bíða afgreiðslu í ráðuneytinu?
    Engar gjaldskrárbreytingar bíða afgreiðslu í ráðuneytinu.