Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 734. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Prentað upp.

Þingskjal 1545  —  734. mál.
Viðbót.

3. umræða.


Breytingartillaga



við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál,
með síðari breytingum (EES-reglur o.fl.).

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


    Á eftir 17. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
     a.      (18. gr.)
             2. og 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XIV í lögunum orðast svo:
             Heimilt er að færa niður veðkröfur skv. 1. mgr. um allt að 15 millj. kr. hjá einstaklingum og um allt að 30 millj. kr. hjá hjónum, sambýlisfólki og einstæðum foreldrum enda sé veðkrafan á veðrétti umfram 110% af verðmæti eignar. Nemi niðurfærslan hærri fjárhæð en 10 millj. kr. hjá einstaklingi og 20 millj. kr. hjá hjónum, sambýlisfólki eða einstæðum foreldrum skal lækka niðurfærslu veðkröfu sem nemur veðrými á aðfararhæfri eign í eigu lántaka eða maka hans, að hluta eða heild, að því marki sem veðrýmið er umfram 1 millj. kr. að viðbættum tvöföldum útborguðum mánaðartekjum viðkomandi einstaklings.
             Við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæði þessu skal miða við fasteignamat. Þó er Íbúðalánasjóði heimilt að byggja verðmat á markaðsverði fasteignar gefi fasteignamat 2011 ekki rétta mynd af verðmæti eignar. Sé fasteign ekki fullbyggð miðast verðmat við markaðsverð eignar. Til grundvallar mati á markaðsverði skal liggja verðmat löggilts fasteignasala sem Íbúðalánasjóður aflar á eigin kostnað.
     b.      (19. gr.)
             Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
             Íbúðalánasjóður skal endurgreiða einstaklingum 20% vaxta almennra lána og endurbótalána sem þeir greiddu sjóðnum á tímabilinu frá 31. desember 2008 til 1. janúar 2011.
             Endurgreiðsla skv. 1. mgr. fer aðeins fram eigi Íbúðalánasjóður ekki eða hafi átt vangoldna kröfu á hendur lántaka eldri en 90 daga gamla. Hafi lán verið endurútreiknað eða skilmálum þess breytt á tímabilinu frá 31. desember 2008 til 1. janúar 2011 skal aldur vangoldinnar kröfu miðaður við tímabilið frá upphafi greiðsludráttar fram að dagsetningu endurútreiknings eða skilmálabreytingar.
             Hver einstaklingur getur að hámarki fengið endurgreidda vexti að fjárhæð 1 millj. kr.
             Íbúðalánasjóður skal ráðstafa vaxtaendurgreiðslu skv. 1. mgr. til niðurgreiðslu lána einstaklinga hjá sjóðnum á eigin kostnað. Eigi einstaklingur ekki lengur lán hjá sjóðnum skal vaxtaendurgreiðslan greidd út.

Greinargerð.


    Markmið breytingartillögunnar er að tryggja að Íbúðalánasjóður geti boðið lántökum upp á sambærileg úrræði og Landsbankinn hf. hefur boðið viðskiptavinum sínum undir heitinu Skuldalækkun Landsbankans. Efni frumvarpsins er fjölþætt og kemur inn á ýmsa þætti er varða Íbúðalánasjóð. Efni breytingartillögunnar hefur samstöðu með frumvarpinu í heild enda er í því m.a. fjallað um breytingar á verkefnaskilgreiningu Íbúðalánasjóðs, skipulag og mat á rekstri og áhættu, eftirlit með starfsemi sjóðsins og fyrirkomulag og skilyrði lánveitinga.