Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 807. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1575  —  807. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Ásbjarnar Óttarssonar
um breytingar á gjaldskrám stofnana ráðuneytisins.


     1.      Hvaða gjaldskrárbreytingar fyrir stofnanir ráðuneytisins hefur ráðherra staðfest á undanförnum 12 mánuðum?
    Á sl. 12 mánuðum hefur ráðherra staðfest eina gjaldskrárbreytingu fyrir undirstofnun ráðuneytisins, þ.e. gjaldskrá fyrir þjónusturannsóknir sem Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum annast, sem birt var í Stjórnartíðindum 18. janúar 2012 sem auglýsing nr. 44/2012.

     2.      Hve miklar hækkanir eða lækkanir hafa orðið á gjaldskránum við þessar breytingar?
    Framangreind auglýsing um gjaldskrá kom í stað eldri auglýsingar um gjaldskrá nr. 51/ 2008. Samkvæmt 18. gr. laga um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, nr. 67/1990, setur ráðherra gjaldskrá fyrir stofnunina að fengnum tillögum stjórnar sem í þessu tilviki lagði til 5% hækkun vegna aukins launakostnaðar. Í frumvarpi til fjárlaga 2012 var gert ráð fyrir meðalhækkun á launaliðum stofnana um 5%. Í útreikningum fjármálaráðuneytis vegna verðlagsbóta til handa stofnuninni í frumvarpi til fjárlaga 2012 var gert ráð fyrir að stofnunin yki sértekjur sínar úr 172,8 millj. kr. í 185,4 millj. kr., um 12,6 millj. kr., sem svarar til um 7,2% aukningar. Framangreind 5% hækkun á gjaldskrá Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er því 2,2% undir ráðgerðri aukningu á sértekjum samkvæmt fjárlögum.

     3.      Hvaða breytingar á gjaldskrám bíða afgreiðslu í ráðuneytinu?
    Engar gjaldskrárbreytingar sem krefjast staðfestingar ráðherra að lögum bíða afgreiðslu í ráðuneytinu. Hins vegar má benda á að ráðherra hefur við undirbúning fjárlagafrumvarps 2012 veitt samþykki fyrir því að nokkrar undirstofnanir ráðuneytisins auki sértekjur sínar með hækkun á gjaldskrá fyrir þjónustugjöld eða aðgangseyri og má í því sambandi nefna Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðmenningarhús og Listasafn Íslands. Slíkar gjaldskrárbreytingar eru þó ekki auglýstar í Stjórnartíðindum og krefjast ekki staðfestingar ráðherra lögum samkvæmt.