Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 835. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1578  —  835. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um endurskoðun laga og reglna um bifreiðastyrki hreyfihamlaðra.


Frá velferðarnefnd.



    Alþingi ályktar að fela velferðarráðherra að hefja heildarendurskoðun á lögum og reglum um bifreiðastyrki og uppbætur vegna reksturs bifreiðar til hreyfihamlaðra einstaklinga. Í endurskoðuninni endurspeglist betur áhersla á rétt fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs í samfélaginu og rétt þess til að eiga valkosti til jafns við aðra.

Greinargerð.

    Í lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum, má finna heimild til að greiða bótaþega uppbót vegna kaupa á bifreið, styrk til reksturs bifreiðar eða hreyfihömluðum einstaklingi styrk til þess að kaupa bifreið. Í reglugerð um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, nr. 170/2009, koma fram nánari skilyrði styrkveitinga samkvæmt lögunum.
    Í 1. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð kemur fram að heimilt sé að greiða til elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og umönnunargreiðsluþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega er nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt er að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar og heimilt er að veita uppbótina á fimm ára fresti vegna sama einstaklings. Sama gildir um uppbót vegna reksturs bifreiðar nema hvað varðar umönnunargreiðsluþega, sbr. 2. mgr. 10. gr. laganna. Í 3. mgr. 10. gr. kemur fram að heimilt sé að greiða styrk til hreyfihamlaðs einstaklings til að afla bifreiðar þótt viðkomandi sé ekki bótaþegi. Í reglugerð um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, nr. 170/ 2009, koma fram í 3. gr. nánari skilyrði fyrir greiðslu uppbóta til bótaþega vegna kaupa á bifreið. Þar kemur fram að heimilt sé að greiða uppbót til framfærenda hreyfihamlaðra barna sem njóta umönnunargreiðslna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Í 2. mgr. 3. gr. koma fram þau skilyrði fyrir greiðslu uppbótar að hinn hreyfihamlaði hafi sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður, nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar sé ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggi fyrir. Þá kemur fram í 6. mgr. 3. gr. að hinn hreyfihamlaði skuli sjálfur eða maki hans vera eigandi bifreiðar. Í 4. gr. koma fram svipuð skilyrði fyrir greiðslu styrks til annarra en bótaþega vegna kaupa á bifreið.
    Stjórnvöld hafa markað sér skýra stefnu um að tryggja fötluðu fólki jafnan rétt til að lifa sjálfstæðu lífi á við ófatlaða og rétt til að eiga valkosti til jafns við aðra í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Telja verður stóran hluta af þeim réttindum felast í frelsi til að ferðast að vild.
    Stuðningur hins opinbera við rekstur eða kaup á bifreið verður að endurspegla þessar áherslur, sem og fjölbreytt búsetuform hreyfihamlaðs fólks.
    Með innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar má ætla að það verði algengara að hreyfihamlaðir einstaklingar búi sjálfstætt og aðstoðarmenn þeirra hjálpi þeim í daglegum ferðum þeirra. Þá má einnig nefna að margir hreyfihamlaðir einstaklingar eiga ekki eða geta jafnvel ekki átt sama heimili og foreldrar eða aðrir nánir ættingjar. Vart verður talið að réttlætanlegt sé að hamla lífsgæðum fatlaðs fólks með því að takmarka veitingu bifreiðastyrkja og uppbóta við að viðkomandi styrkþegi hafi ökuréttindi og geti þannig ekið bílnum sjálfur, eða að annar heimilismaður hafi ökuréttindin. Með auknu sjálfstæði fatlaðs fólks með notendastýrðri persónulegri aðstoð verður að telja nauðsynlegt að hægt sé að greiða styrki til bifreiðakaupa til fatlaðs einstaklings þó að hann hafi ekki sjálfur ökuréttindi né aðrir á heimili hans og enn fremur ef hann dvelur á hjúkrunarheimili.
    Einnig hefur verið á það bent að hreyfihömluðum er ekki heimilt að sameina styrki sína við kaup á bifreið. Það hefur í för með sér að fatlað fólk sem býr á sambýli, hjón sem eru hreyfihömluð eða foreldrar barna þar sem fleiri en eitt barn eru hreyfihömluð geta ekki nýtt styrki sameiginlega til kaupa á einni bifreið. Þetta er sérlega bagalegt í ljósi þess að bílar sem henta fyrir hjólastóla og annan hjálparbúnað eru oft stórir og dýrir. Flutningsmenn telja að með aukinni áherslu á möguleika fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi á því að vera mögulegt að ráðstafa uppbótum og styrkjum sem það fær til kaupa á bifreið þannig að það þjóni sem best hagsmunum þess.
    Í 50. máli á yfirstandandi þingi (þskj. 50) er lagt til að aðrir en hinn hreyfihamlaði einstaklingur geti fengið styrk eða uppbót vegna kaupa eða reksturs bifreiðar. Í umsögn um málið var á það bent að hugsanlega mætti ná tilgangi frumvarpsins með breytingu á reglugerð og ekki væri því nauðsynlegt að breyta lögum. Nefndin telur því rétt að leggja fram tillögu þessa til þingsályktunar frekar en að leggja til að frumvarpið verði samþykkt. Nauðsynlegt er að við þá endurskoðun sem tillaga þessi mælir fyrir um verði reglum um styrkveitingar til kaupa og reksturs bifreiða hagað á eins einfaldan hátt og mögulegt er og þannig að styrkirnir geti nýst fötluðu fólki sem best og ekki verði kveðið á um of íþyngjandi skilyrði fyrir veitingu styrkja og uppbóta vegna kaupa og reksturs bifreiða.