Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 850. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1680  —  850. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um stöðu tjónþola
eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og í Grímsvötnum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig er staða tjónþola, sveitarfélaga og einstaklinga, eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og í Grímsvötnum? Hefur verið leyst úr öllum vandamálum sem upp hafa komið?

    Fyrirspurnin lýtur að afleiðingum stórra atburða. Er þar um að ræða gos á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli vorið 2010, eldgos í Grímsvötnum vorið 2011, Múlakvíslarhlaup úr Kötlu syðst í Mýrdalsjökli sl. sumar og jarðhræringar sem enn gera vart við sig á jöklasvæðunum á Suðurlandi.
    Fjölmargir aðilar hafa komið að úrlausn mála í kjölfarið á þessum hamförum og segja má að stjórnkerfið, sjálfboðaliðasamtök og þjóðin öll hafi sýnt hvað í henni býr og styrkleika kerfis okkar við alvarlega atburði sem þessa. Stofnanir ríkisins fylgjast með þróun mála og ríkisstjórnin fylgist á hverjum tíma grannt með og hefur fengið ýmsa aðila á sinn fund til þess að afla upplýsinga um stöðu mála milliliðalaust.
    Mjög gott samstarf hefur verið milli þeirra fjölmörgu aðila sem að málum hafa komið í kjölfar hamfaranna og er það mikilvægur þáttur í að takast á við verkefnið í heild sinni. Hér hafa sveitarfélög og margar stofnanir komið samhent að málum. Má í því samhengi nefna eftirfarandi aðila: sveitarstjórnir í þeim þremur sveitarfélögum sem mestan hlut eiga að máli, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi, ríkislögreglustjóra – almannavarnadeild, lögregluumdæmi, þjónustumiðstöð almannavarna á gossvæðunum, Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Vegagerð ríkisins, Bjargráðasjóð, Landgræðslu ríkisins, slysavarnafélög og hjálparsveitir, Landhelgisgæsluna, einstaklinga, félög og fyrirtæki, Viðlagatryggingu, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, bænda- og búnaðarsamtök, ferðaþjónustuaðila, Vinnumálastofnun, landlæknisembættið, sóttvarnalækni, dvalar- og heilbrigðisstofnanir, Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands. Þá hafa öll ráðuneyti Stjórnarráðs Íslands komið að málum með einum eða öðrum hætti.
    Ríkisstjórnin fylgist áfram náið með framvindu mála og mun fjalla um þá þætti sem þörf er á og upp kunna að koma á síðari stigum eftir þróun mála á eldgosasvæðunum og á meðan ástæða er til að samhæfa viðbrögð. Enn er mikil hætta á flóðum og aurframburði í ám og öskufok er afar hvimleitt og heilsuspillandi í þurrviðri.
    Samráðshópur ráðuneytisstjóra um viðbrögð við náttúruhamförum fór í ferð um gossvæðin á Suðurlandi í maí sl. til að kanna aðstæður og ræða við heimafólk og í för með þeim voru fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra auk landgræðslustjóra og vegamálastjóra. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 25. maí sl. fjárframlög að fjárhæð 129 millj. kr. til áframhaldandi verkefna sem talin voru brýn. Var þar um að ræða styrk til Skaftárhrepps til að takast á við óvænt útgjöld sveitarfélagsins og verkefni í kjölfar Grímsvatnagossins, framlag til Vegagerðarinnar vegna fyrirbyggjandi aðgerða við byggingu og styrkingu varnargarða nú í ár og til Landgræðslunnar til að sinna aðgerðum á gossvæðunum á Suðurlandi í sumar og nk. haust vegna varnargarða og framkvæmda við heftingu öskufoks, en ástandið í Fljótshverfi í Skaftárhreppi er mjög slæmt og brýn þörf á aðgerðum sem þegar eru hafnar. Þá er innanríkisráðuneytið með í skoðun hvaða ráð séu heppilegust til að vernda kaldavatnslögn til Vestmannaeyja og Landeyja á Markarfljótsaurum og mun verða í samskiptum við hagsmunaaðila og viðeigandi sveitarfélög hvað þann þátt varðar.
    Ljós er sú staðreynd að hvorki hefur nú né í kjölfar annarra náttúruhamfara hér á landi á umliðnum áratugum og öldum reynst unnt að bæta tjón í öllum tilvikum enda þótt varið hafi verið á annan milljarð króna til verkefna vegna þeirra atburða sem hér að framan er greint frá. Þannig hefur reynst nauðsynlegt að synja beiðnum um bætur eða styrki vegna tekju- og rekstrartaps, rannsóknarverkefna og ýmissa lögbundinna verkefna stofnana. Einnig vegna tjóna á vélum, tækjum, pöllum, heitum pottum og útihúsgögnum og vinnu við þrif. Þess skal þó getið að ýmsir sjálfboðaliðar, samtök, fyrirtæki og stofnanir lögðu til mikla og ómetanlega vinnu hvað varðar hreinsun á gossvæðunum og fleiri þætti sem er afar þakkarvert framlag.
    Tjónamat og greiðsla bóta liggur einkum hjá stofnunum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varðandi Bjargráðasjóð og hjá innanríkisráðherra varðandi Viðlagatryggingu Íslands. Sé óskað eftir upplýsingum um tjónagreiðslur eða stöðu mála í umsýslu þessara aðila ber samkvæmt ákvæðum þingskapalaga að beina fyrirspurnum til þess ráðherra sem fer með viðkomandi ráðuneyti.
    Samráðshópur ráðuneytisstjóra um viðbrögð við náttúruhamförum hefur fjallað heildstætt og með samræmdum hætti um framkvæmdir, aðgerðir og kostnað sem tengja mætti neyðaraðgerðum á gossvæðinu í kjölfar þessara atburða. Ríkisstjórnin hefur reglulega fjallað um tillögur hópsins og einstök mál og samþykkt viðbótarfjárveitingar sem nema nú í júní 2012 u.þ.b. 1,4 milljörðum kr. (1.423,85 millj. kr.) frá því að eldgosa- og hamfarahrinan hófst í maí 2010. Er þá ekki meðtalinn margvíslegur kostnaður stofnana sem fjármagnaður hefur verið af reglubundnum árlegum fjárheimildum þeirra, né verulegar fjárhæðir sem falla til hjá Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóði. Fyrirséð eru útgjöld sem falla munu til hjá stofnunum þessu til viðbótar.