Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 838. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1685 — 838. mál.
Hver hefur verið þróun fjárheimilda, starfsmannafjölda og meðallauna starfsmanna hjá Seðlabanka Íslands frá árinu 2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins, samkvæmt lögum nr. 36/2001. Seðlabankinn er ekki með sérstakar fjárheimildir heldur er rekinn af eigin aflafé. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarkostnað bankans á greiðslugrunni á árunum 2007–2011.
Í eftirfarandi töflu má sjá þróun fjölda starfsmanna hjá Seðlabanka Íslands 2007–2011 (bankastjórar og starfsfólk við ræstingu ekki talið með).
Eftirfarandi tafla sýnir yfirlit um meðallaun starfsmanna Seðlabanka Íslands á árunum 2007–2011. Tölurnar fela í sér heildarlaunagreiðslur til starfsmanna Seðlabanka Íslands, fastráðinna, lausráðinna og afleysingafólks. Kjarasamningsbundnar hækkanir áttu sér stað á árunum 2008, 2010 og 2011.
Umtalsverðar starfsmannabreytingar urðu á milli áranna 2010–2011. 19 starfsmenn létu af störfum og 22 starfsmenn voru ráðnir og fjölgaði því um þrjá milli ára. Háskólamenntuðum starfsmönnum fjölgaði um sex milli ára, en háskólamenntaðir starfsmenn eru almennt á hærri launum en starfsmenn með minni menntun. Á árinu 2011 voru nýir kjarasamningar samþykktir og höfðu þeir í för með sér 4,25% launahækkun 1. júní, auk eingreiðslna 1. júní, 1. júlí og 1. desember, samtals 75.000 kr. fyrir hvern starfsmann í fullu starfi á árinu 2011. Auk þess var launatöflum breytt frá 31. desember 2011 sem olli því að áfallið orlofsframlag þeirra aðila sem voru í sk. A-töflu var greitt út og gjaldfært í desember 2011 í stað maí 2012.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1685 — 838. mál.
Svar
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
um fjárheimildir og starfsmenn Seðlabanka Íslands.
Hver hefur verið þróun fjárheimilda, starfsmannafjölda og meðallauna starfsmanna hjá Seðlabanka Íslands frá árinu 2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins, samkvæmt lögum nr. 36/2001. Seðlabankinn er ekki með sérstakar fjárheimildir heldur er rekinn af eigin aflafé. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarkostnað bankans á greiðslugrunni á árunum 2007–2011.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.