Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 846. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1691  —  846. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar um
auglýsingar um störf.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mörg störf hafa verið auglýst „án staðsetningar“ hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess frá 1. júní 2009 til 1. júní 2012? Hversu mörg störf hafa verið auglýst á sama tímabili hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess?

    Á tímabilinu frá 1. júní 2009 til 1. júní 2012 auglýsti mennta- og menningarmálaráðuneytið 37 lausar stöður, engin þeirra var auglýst „án staðsetningar“.
    Ráðuneytið leitaði svara hjá undirstofnunum sínum og alls bárust svör frá 48 stofnunum. Samkvæmt þeim svörum er bárust voru 320 stöðugildi (100% störf) auglýst á þessu tímabili. Þar af voru 20,5 stöðugildi auglýst „án staðsetningar“.