Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 843. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1694 — 843. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu mörg störf hafa verið auglýst „án staðsetningar“ hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess frá 1. júní 2009 til 1. júní 2012? Hversu mörg störf hafa verið auglýst á sama tímabili hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess?
Á tímabilinu hafa 105 störf verið auglýst í ráðuneytinu og hjá stofnunum þess. Störfin voru auglýst í samræmi við ákvæði reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum. Í reglunum er ekki fjallað sérstaklega um störf án staðsetningar. Í 3. gr. reglnanna er kveðið á um að í yfirliti Starfatorgs um laus störf sem skal birtast í dagblaði á landsvísu skuli m.a. tilgreina í hvaða sveitarfélagi starfsmaður verður staðsettur. Setja þær reglur vinnuveitendum skorður um auglýsingar starfa án staðsetningar.
Þrátt fyrir að umrædd störf hafi ekki verið auglýst sérstaklega án staðsetningar eru dæmi um að starfsmenn ráðuneytisins og stofnana þess sinni störfum sínum í fjarvinnu eða að þeir fari á milli starfsstöðva embætta þess tímabundið og ótímabundið.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1694 — 843. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar um auglýsingar um störf.