Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 841. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1699  —  841. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar um auglýsingar um störf.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mörg störf hafa verið auglýst „án staðsetningar“ hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess frá 1. júní 2009 til 1. júní 2012? Hversu mörg störf hafa verið auglýst á sama tímabili hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess?

    Ekkert starf hefur verið auglýst án staðsetningar á því tímabili sem fyrirspurnin nær til. Nítján störf hafa verið auglýst hjá utanríkisráðuneytinu og samtals ellefu störf hjá undirstofnunum á umræddu tímabili. Þar af hafa alls fimm störf verið auglýst á starfsstöðvum Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins, annars vegar á Akureyri og hins vegar á Ísafirði, auk þess sem Íslandsstofa auglýsti á tímabilinu eitt starf með starfsstöð í New York.