Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 851. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1701  —  851. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um viðlagatryggingar og jarðskjálftana á Suðurlandi 2008.


     1.      Hver er staða tjónþola eftir jarðskjálftana á Suðurlandi 2008 hvað varðar viðlagatryggingar? Er öllum málum lokið?
    Samkvæmt upplýsingum Viðlagatryggingar Íslands voru þann 1. júlí sl. tilkynntir tjónsstaðir til Viðlagatryggingar Íslands vegna Suðurlandsskjálftans 29. maí 2008 samtals 4.493. Þar af eru tjón á fasteignum í 3.914 tilvikum og í 579 málum var eingöngu tilkynnt um innbús- eða lausafjártjón. Tilkynnt hefur verið um viðbótarfasteignatjón í 828 málum og viðbótarinnbústjón í 2 málum.
    Ef litið er á tjónstilkynningar á fasteignum og lausafé eftir árum voru 3.169 tjónsatvik tilkynnt árið 2008. Árið 2009 voru tilkynnt 536 tjón og 424 viðbótartjón, árið 2010 voru tilkynnt 131 tjón og 177 viðbótartjón, árið 2011 voru tilkynnt 60 tjón og 154 viðbótartjón og það sem af er af árinu 2012 hafa verið tilkynnt 18 tjón og 86 viðbótartjón.
    Tjóna- og viðbótartjónamál sem enn hafa ekki fengið fullnaðarafgreiðslu eru 109 talsins. Þar af voru þann 1. júlí sl. 5 mál í greiðsluferli, í 47 málum var frestur tjónþola til andmæla ekki liðinn, matsgerð var í vinnslu í 46 málum og óskoðuð mál voru 11.
    Af óskoðuðum málum voru þrjú mál tilkynnt árið 2008, eitt var með ranga skráningu í gagnagrunni, eitt er á Vestfjörðum og telst utan áhrifasvæðis jarðskjálfta á Suðurlandi og í þriðja tilfellinu hefur verið beðið eftir viðbrögðum tjónþola við fyrirspurnum matsmanna. Tvö málanna voru tilkynnt 2010 og þrjú 2011 og hafa þau ekki ennþá verið skoðuð. Síðustu þrjú málin voru öll tilkynnt á þessu ári og eru í vinnslu. Í þeim tilfellum sem tjónaskoðun hefur dregist hefur nú þegar verið brugðist við og haft samband við málsaðila til að ljúka skoðun og tjónamati.
    Mál þar sem tjón á burðarvirki húsnæðis var tilkynnt til viðkomandi byggingarfulltrúa eru 336 og mál þar sem brunabótamat húsnæðis hefur verið greitt að fullu eru 108.
    Í 19. gr. laga nr. 55/1992, um Viðlagatryggingu Íslands, er kveðið á um að stjórn stofnunarinnar skuli úrskurða um ágreiningsefni, sætti tjónþoli sig ekki við ákvörðun um tjónabætur. Af 3.914 tjónsstöðum hefur stjórn Viðlagatryggingar Íslands fengið 19 ágreiningsmál til meðferðar. Þrettán af þeim málum er lokið, stjórn óskaði dómkvaðningar matsmanna í einu máli sem enn er í vinnslu og ólokið er að úrskurða í fimm málum. Mál sem ólokið er hafa öll komið til úrskurðar hjá stjórn á árinu 2012. Tvö þeirra eru á lokastigi úrskurðar en í þremur málum stendur yfir gagnakynning fyrir tjónþolum.
    Sætti tjónþoli sig ekki við úrskurð stofnunarinnar getur hann, skv. 19. gr. laga nr. 55/1992, skotið ágreiningi til úrskurðarnefndar sem skipuð er af ráðherra innan 30 daga frá því að honum barst tilkynning stjórnarinnar. Í úrskurðarnefndinni sitja fjórir fulltrúar, formaður sem skipaður er samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar, einn samkvæmt tilnefningu Veðurstofu Íslands, annar er skipaður af Háskóla Íslands og sá þriðji án tilnefningar. Nefndinni er heimilt að leita aðstoðar sérfræðinga ef ástæða þykir. Störf nefndarmanna eru greidd af Viðlagatryggingu Íslands. Úrskurðarnefndin hefur fengið sex mál til meðferðar vegna jarðskjálftans á Suðurlandi 2008, elsta málið er frá 2011 en þar hefur tjónþoli óskað eftir frestun úrskurðar, fimm mál eru frá árinu 2012 og eru þau öll í vinnslu hjá úrskurðarnefnd.

     2.      Hyggst ráðherra leggja til breytingar á lögum um Viðlagatryggingu Íslands í ljósi reynslunnar?
    Nefnd er að störfum um endurskoðun á lagaumhverfi náttúruhamfaratrygginga. Hefur nefndarstarfið tafist nokkuð vegna þess að beðið hefur verið eftir niðurstöðum nefndar forsætisráðherra um tjónabætur sem áætlað er að ljúki störfum fyrir haustið.
    Er ráðgert að leggja fram frumvarp á 141. löggjafarþingi um endurskoðað lagaumhverfi náttúruhamfaratrygginga.