Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 63. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 63 — 63. mál.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar þar sem bornar verði upp grundvallarspurningar um afstöðu almennings til ráðstöfunar fiskveiðiauðlindarinnar, m.a. um innköllun aflaheimilda, tímabundna endurúthlutun gegn gjaldi, nýtingarsamninga/nýtingarleyfi og opinn leigumarkað með aflaheimildir.
Heildarendurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins hefur staðið nær sleitulaust frá síðustu alþingiskosningum. Þannig hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagt fram tvö frumvörp til heildarlaga um stjórn fiskveiða á þessu kjörtímabili (827. mál á 139. löggjafarþingi og 657. mál á 140. löggjafarþingi). Í stuttu máli lukkaðist Alþingi ekki að ljúka umfjöllun sinni um frumvörpin.
Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er m.a. fjallað um mikilvægi þess að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum og stefna að breytingum á núverandi fiskveiðistjórnarkerfi að undangengnu samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og í samfélagslegri sátt. Niðurstaða samráðs við hagsmunaaðila liggur fyrir í skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða sem afhent var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 6. september 2010. Í skýrslunni er m.a. fjallað um þau álitaefni sem meiri hluti starfshópsins sammæltist um. Á bls. 13 í skýrslunni kemur eftirfarandi m.a. fram:
Meirihluti starfshópsins telur að með tilliti til settra markmiða og kröfu um jafnræði og meðalhóf sé rétt að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið með sjálfstæðri löggjöf sem taki hliðsjón af auðlindastefnu almennt er byggist á hugmyndum um samningaleið. Meirihluti starfshópsins telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins sé skýr. Samningarnir skulu m.a. fela í sér ákvæði um réttindi og skyldur samningsaðila, kröfur til þeirra sem fá slíka samninga, tímalengd og framlengingu samninga, gjaldtöku, aðilaskipti, ráðstöfun aflahlutdeilda sem ekki eru nýttar, meðferð sjávarafla o.fl. […]
Meirihluti starfshópsins er sammála um að mæla með að aflaheimildum verði skipt í „potta“ þar sem annars vegar eru aflahlutdeildir og hins vegar bætur og ívilnanir, s.s. byggðakvóti, strandveiðar og aðrar sérstakar ráðstafanir. Gæta skal jafnræðis við úthlutun nýrra aflaheimilda eða heimilda sem komi til endurúthlutunar með opinberum markaði.
Frá því að skýrsla þessi kom fram hafa háværar deilur staðið um þau meginatriði sem meiri hluti starfshópsins náði samkomulagi um, þ.e. kröfuna um jafnræði og meðalhóf, nýtingarsamninga (nýtingarleyfi) og tímalengd þeirra, réttindi og skyldur þeirra sem nýta sjávarauðlindina, ráðstöfun ónýttra aflahlutdeilda, leigupotta, byggðakvóta og strandveiðar svo fátt eitt sé nefnt.
Á sama tíma hafa skoðanakannanir þó sýnt ríkan vilja meðal þjóðarinnar til þess að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu nái fram að ganga. Er því brýnt að fá úr því skorið hver þjóðarviljinn er í þessu efni svo unnt sé að leiða málið farsællega til lykta.
Markmið sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fiskveiðar umhverfis landið séu hagkvæmar og skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar og vistvænar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa, lífríkis og hafsbotns. Því er heitið að lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að stuðla að vernd fiskstofna, stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar, treysta atvinnu, efla byggð í landinu, skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka. Mörkuð er sú stefna að veiðiheimildir skuli ákvarðast af nýtingarstefnu sem byggist á aflareglu hverju sinni. Því er heitið í stjórnarsáttmálanum að með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði undirstrikað að fiskstofnarnir umhverfis landið séu sameign þjóðarinnar, enda segir í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, að úthlutun veiðiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir heimildunum. Þá er því heitið að brugðist verði frekar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007, m.a. með því að gæta atvinnufrelsis og tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind.
Mikilvægt er að skapa íslenskum sjávarútvegi sem best rekstrarskilyrði og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en leita jafnframt sátta í samfélaginu um fyrirkomulag fiskveiðistjórnar á grundvelli fyrirheita ríkisstjórnarinnar.
Flutningsmenn tillögunnar telja að ekki verði undan því vikist að efna fyrirheit stjórnarflokkanna um breytingar á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni. Niðurstaða starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða og málflutningur forsvarsmanna Landssambands íslenskra útvegsmanna undanfarið bendir hins vegar til þess að breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu muni vart nást fram þannig að fullt samkomulag sé um þær, hvorki meðal hagsmunaaðila né almennings.
Af framangreindum sökum telja flutningsmenn fulla ástæðu til þess að þjóðin fái að tjá hug sinn um þetta mikilvæga mál og að stjórnvöld fái þar með vegvísi til að vinna með að úrlausn helstu álitaefna varðandi fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi fiskveiðistjórnar.
Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að vinna að framgangi málsins m.a. með því að undirbúa og orða þær grundvallarspurningar sem æskilegt er að þjóðin svari áður en málið verður leitt endanlega til lykta.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 63 — 63. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar.
Flm.: Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar, Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Skúli Helgason, Valgerður Bjarnadóttir,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Magnús Orri Schram, Lúðvík Geirsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar þar sem bornar verði upp grundvallarspurningar um afstöðu almennings til ráðstöfunar fiskveiðiauðlindarinnar, m.a. um innköllun aflaheimilda, tímabundna endurúthlutun gegn gjaldi, nýtingarsamninga/nýtingarleyfi og opinn leigumarkað með aflaheimildir.
Greinargerð.