Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 76. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 76  —  76. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um þátttöku feðra í fæðingarorlofi.

Frá Lúðvík Geirssyni.


     1.      Hvernig hefur þátttaka feðra í fæðingarorlofi þróast frá og með árinu 2007?
     2.      Hvert er mat ráðherra á áhrifum lækkaðs tekjuþaks á þátttöku feðra í fæðingarorlofi síðustu árin?
     3.      Hvaða leiðir telur ráðherra árangursríkastar til að auka þátttöku feðra?
     4.      Má vænta einhverra breytinga á fyrirkomulagi og skipan fæðingarorlofs á næstunni?


Skriflegt svar óskast.