141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 115 — 115. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um nauðungarsölu, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl.
og lögum um meðferð einkamála (ógilding, endurupptaka).
Flm.: Magnús M. Norðdahl, Eygló Harðardóttir,
Margrét Tryggvadóttir, Ólína Þorvarðardóttir.
I. KAFLI
Lög um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 80. gr. um frest til að leita úrlausnar héraðsdómara um gildi nauðungarsölu og ákvæði 2. mgr. um samþykki þeirra sem hafa haft uppi kröfur fyrir sýslumanni er uppboðsþola heimilt að leita úrlausnar héraðsdómara um gildi nauðungarsölu íbúðarhúsnæðis sem uppboðsþoli hafði til afnota fyrir sig og fjölskyldu sína og fram hefur farið til fullnustu kröfu sem ólögmæt er talin í ljósi hæstaréttardóma um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána enda hafi uppboðskaupandi jafnframt verið eigandi hinnar umdeildu kröfu og sé eigandi uppboðsandlagsins þá er úrlausnar héraðsdómara er leitað. Að kröfu uppboðsþola er nauðungarsala til fullnustu kröfu samkvæmt framansögðu ógildanleg.
II. KAFLI
Lög um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, með síðari breytingum.
2. gr.
Þrotamanni er heimilt að leita úrlausnar héraðsdómara um gildi sölu fasteignar samkvæmt ákvörðun veðhafafundar til fullnustu kröfu sem er umdeild í ljósi hæstaréttardóma um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána enda hafi kaupandi jafnframt verið eigandi hinnar umdeildu kröfu og sé eigandi uppboðsandlags þá er úrlausnar héraðsdómara er leitað. Að kröfu þrotamanns er sala til fullnustu kröfu samkvæmt framansögðu ógildanleg.
III. KAFLI
Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991, með síðari breytingum.
3. gr.
Án tillits til þeirra fresta sem greindir eru í 1. mgr. 137. gr. getur þrotamaður, þrátt fyrir að útivist hafi verið af hans hálfu, krafist endurupptöku gjaldþrotaúrskurðar í máli þar sem skiptum á búi hans er ekki lokið enda leiði hann líkur að því að greiðsluerfiðleika hans sé að rekja til gengistryggðra lána sem talin eru ólögmæt í ljósi hæstaréttardóma um lögmæti og endurreikning gengistryggðra lána. Ákvæði þetta á einungis við einstaklinga utan rekstrar.
4. gr.
Greinargerð.
„Ef gengið hefur dómur um kröfu samkvæmt lánssamningi með óheimilli gengistryggingu skal endurupptaka heimil skv. XXIII. kafla laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, án tillits til þess hvort tímafrestir séu liðnir samkvæmt ákvæðum 137. gr. sömu laga. Sama skal gilda um úrskurði um gjaldþrotaskipti. Skuldara er jafnframt heimilt að óska eftir endurupptöku fullnustugerða hafi slíkar gerðir farið fram á grundvelli lánssamninga sem höfðu að geyma ólögmæt ákvæði um gengistryggingu. Heimildir til endurupptöku samkvæmt þessu ákvæði falla niður að liðnum níu mánuðum frá gildistöku laga þessara.“
Reynt hefur á ákvæðið fyrir dómi og má þar vísa til dóms Hæstaréttar í máli nr. 25/2012 frá 24. janúar 2012, úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. Y-10/2011 frá 22. nóvember 2011 og úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. X-20/2011 frá 22. nóvember 2011. Ákvæðið reyndist ekki skapa skuldurum þá vernd sem Alþingi ætlaðist til að það veitti.
Efni þessa frumvarps var flutt á 140. löggjafarþingi sem breytingartillaga við 716. mál en var fellt á síðasta þingdegi m.a. vegna þess að tími hafði ekki gefist til hefðbundinnar og vandaðrar þinglegrar meðferðar. Mikilvægi þess hefur ekki breyst og því er það flutt að nýju.
Í samráði fjármálafyrirtækja með aðkomu umboðsmanns skuldara og hagsmunasamtaka skuldara og lánþega er nú leitast við að framkalla dóma sem endanlega skeri úr um lögmæti gengistryggðra lána. Væntingar eru um að úrlausnir dómstóla liggi fyrir í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Til margvíslegra ráðstafana hefur verið gripið til þess að bæta réttarstöðu þeirra sem ekki hafa nú þegar glatað eignum sínum eða eru orðnir ógjaldfærir vegna ólögmætra gengistryggðra lána. Flutningsmenn telja einnig nauðsynlegt að Alþingi tryggi þeim einstaklingum sem hafa mátt þola nauðungaruppboð og gjaldþrot vegna ólögmætra gengistryggðra lána réttarstöðu til þess að sækja rétt sinn, eignir og mannorð að nýju meðan dómar um endanlegt gildi gengistryggðra lána hafa ekki enn gengið.
Frumvarpið byggist á þeirri staðreynd að stór hópur lánþega hefur misst íbúðarhúsnæði sitt í hendur kröfuhafa sem hugsanlega hafa leyst eignir þeirra til sín á grundvelli vanskila á lánum sem ólögmæt hafa verið frá upphafi og hefðu aldrei átt að leiða til vanskila og nauðungaruppboðs. Íslensk stjórnvöld, framkvæmdarvald og Alþingi, brugðust almenningi með því að láta viðgangast um árabil ólögmæta lánastarfsemi hér á landi og lögðu síðan eigendum hina ólögmætu krafna til vald sitt til innheimtu þeirra í skjóli réttarfarslaga, m.a. við opinber nauðungaruppboð. Þar hjó sá er hlífa skyldi. Sá samfélagslegi skaði, þau persónulegu áföll og það tjón sem varnarlausar fjölskyldur urðu fyrir í kjölfar hrunsins haustið 2008 og þess glundroða sem því fylgdi verður aldrei bætt að fullu. Frumvarp þetta er tilraun til þess að skapa þeim einstaklingum sem urðu fórnarlömb hinna ólögmætu lána og hinnar ólögmætu innheimtu möguleika til þess að leysa til sín íbúðarhúsnæði sem þeir glötuðu til eigenda hinna ólögmætu krafna enda séu þeir enn eigendur húsnæðisins. Hafi eignirnar verið seldar verða tjónþolar að sætta sig við almennar skaðabótareglur 3. mgr. 80. gr. nauðungarsölulaga.
Margvísleg vandamál kunna að rísa í framhaldi þess að skuldari krefst ógildingar nauðungaruppboðs löngu eftir að uppboðið hefur farið fram, greiðslur hafa átt sér stað og afsal gefið út. Flutningsmenn telja íslenskt réttarkerfi vel í stakk búið til þess leysa úr þeim vandamálum og þar sem ákvæðið tekur einungis til eigna sem ennþá eru í höndum kröfuhafa hinna ólögmætu lána sé ekki hætta á því að farið sé gegn ákvæðum stjórnarskrár um vernd eignarréttar. Viðeigandi ákvæðum stjórnarskrár var ekki og er ekki ætlað að slá skjaldborg um eignarrétt þeirra sem komast yfir eignir á grundvelli ólögmætra skuldbindinga, jafnvel þó að þess eignarréttar hafi verið aflað með fulltingi lögmætra yfirvalda. Sá sem beitir fyrir sig stjórnvöldum til heimtu ólögmætrar kröfu verður sjálfur að axla ábyrgð á þeim skaða sem hann kann að verða fyrir vegna þess arna og er það í samræmi við 3. mgr. 80. gr. laganna.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. og 2. gr.
Í 2. gr. frumvarpsins er tekið sérstaklega á þeirri réttarstöðu sem er fyrir hendi þegar fasteign hefur verið ráðstafað á fundi veðhafa í stað uppboðs en það virðist hafa gleymst að gera þegar lög nr. 151/2010, um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins og lögum um umboðsmann skuldara, voru samþykkt á Alþingi.
Um 3. gr.
Um 4. gr.