Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 125. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 125 — 125. mál.
Hámarkslaun forsvarsmanns stéttarfélags eða samtaka stéttarfélaga skulu ekki vera hærri en þreföld lágmarkskjör í því félagi sem hann veitir forstöðu skv. 1. mgr.
Samningsfrelsi er grundvallarregla í íslenskum rétti. Löggjafinn hefur þó talið rétt að setja samningsfrelsinu ákveðnar skorður séu rík rök þar að baki. Meðal þeirra raka sem oft er vísað til eru almannahagsmunir. Flutningsmenn frumvarpsins telja mikilvægt að sett sé hámark á laun forsvarsmanna verkalýðsfélaga og hagsmunasamtaka launafólks. Að baki slíku hámarki eru rík sanngirnissjónarmið enda eru þessi laun greidd úr sameiginlegum sjóðum verkalýðsins. Með frumvarpinu væru samningsfrelsi settar nokkrar skorður enda yrði ólöglegt að semja um hærri laun en nemur þreföldum lágmarkskjörum. Við ákvörðun þessa hámarks var þó gætt meðalhófs og ekki gengið of nærri samningsfrelsi aðila. Með því að kveða á um þreföld lágmarkskjör er enn fremur talið tryggt að hámarkið sé ákvarðað þannig að launin séu samkeppnishæf svo að hæft fólk fáist til starfans og ákvæðið dragi ekki úr hvata þeirra sem hæfastir eru til að sinna starfinu.
Flutningsmenn telja jafnframt rétt að vekja athygli á því að setning hámarks sem er á þennan hátt bundið lágmarkskjörum getur verið forsvarsmönnum mikilvægur hvati til að berjast fyrir bættum rétti félagsmanna þar sem hækkun lágmarkslauna getur leitt til beinnar hækkunar launa þeirra.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 125 — 125. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu
lífeyrisréttinda, nr. 55/1980, með síðari breytingum.
Flm.: Margrét Tryggvadóttir, Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir.
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Hámarkslaun forsvarsmanns stéttarfélags eða samtaka stéttarfélaga skulu ekki vera hærri en þreföld lágmarkskjör í því félagi sem hann veitir forstöðu skv. 1. mgr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Ákvæði til bráðabirgða.
Greinargerð.