Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 165. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 165  —  165. mál.




Fyrirspurn



til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um úrskurðarnefndir.

Frá Atla Gíslasyni.


     1.      Hversu margar sjálfstæðar og óháðar úrskurðarnefndir eru starfandi á vegum ráðuneytisins, hvað heita þær og hver eru verkefni þeirra?
     2.      Hver var heildarkostnaður ríkisins af starfsemi nefndanna árin 2009, 2010 og 2011, sundurliðað á hverja nefnd fyrir sig?


Skriflegt svar óskast.