Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 186. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 205 — 186. mál.
1. Á hvaða lagagrunni byggist ný gjaldtaka fyrir einkanúmer?
Núgildandi gjaldtaka fyrir einkamerki byggist á 2. mgr. 64. gr. a núgildandi umferðarlaga, nr. 50/1987, og er 25.000 kr.
Ný gjaldtaka, ef að verður, byggist á 71. gr. frumvarps til nýrra umferðarlaga sem lagt hefur verið fram á Alþingi, þingskjal 180 í 179. máli. Samkvæmt ákvæði frumvarpsins skal greiða 50.000 kr. fyrir réttinn til einkamerkis, auk gjalds fyrir skráningu og skráningarmerkin sjálf. Gildir rétturinn til átta ára og ber að endurnýja hann að átta árum liðnum vilji rétthafi einkamerkis nota merkið lengur.
2. Hvort er um að ræða skatt eða gjald?
Gjaldtaka fyrir einkanúmer er tilgreind sérstaklega í umferðarlögum og uppfyllir því formskilyrði skatts. Sama fyrirkomulag er fyrirhugað í nýju frumvarpi að umferðarlögum.
3. Hvaða þjónusta er veitt sem réttlætir þessa gjaldtöku af eigendum bifreiða með einkanúmer?
Töluverð umsýsla er við einkanúmer. Má þar helst nefna umsýslu- og rekstrarkostnað, vinnslu og útsendingu bréfa, hlutdeild í tölvurekstri og forritunarvinnu, skráningu réttinda í ökutækjaskrá o.s.frv. Þá má einnig nefna að einkanúmer eru talsvert færri en venjuleg númer og því dreifist umsýslukostnaður, t.d. hlutdeild í rafrænum skrám og ýmsum öðrum föstum kostnaði, á færri einingar en þegar kostnaður er reiknaður við almenn númer. Rétt er að benda á að einkamerki hafa töluverða sérstöðu þar sem einstaklingar og lögaðilar ráða því hvort þeir vilja einkenna ökutæki sín með sérstakri áletrun í formi einkamerkis.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 205 — 186. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um gjaldtöku fyrir einkanúmer.