Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 212. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 219 — 212. mál.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að móta stefnu um fæðuöryggi Íslands, skilgreina ógnir við fæðuöryggi og undirbúa viðeigandi viðbrögð við þeim.
Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að móta stefnu um fæðuöryggi Íslands og tryggja þannig matvælaöryggi þjóðarinnar í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs þar sem fram koma fyrirheit um að standa vörð um fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar. Fram kom í umræðum á Alþingi mánudaginn 24. ágúst sl. að ekki hefði verið mótuð fæðuöryggisstefna þrátt fyrir stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Flutningsmenn telja brýnt að þessi vinna fari fram sem allra fyrst af því að um mikilvægt öryggisatriði er að ræða og hagur þjóðarinnar að veði. Þessi mál hafa komið til skoðunar víða í nágrannalöndum okkar en engin opinber stefna í þessum málaflokki hefur verið mótuð af hálfu íslenskra stjórnvalda. Þrátt fyrir að efnahagshrun og náttúruhamfarir þær sem gengið hafa yfir landið á undanförnum árum hafi hringt ákveðnum viðvörunarbjöllum hefur það ekki dugað til.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gerir ráð fyrir að matvælaþörf heimsins aukist um 70% til ársins 2050. Aðalástæðan er aukinn fólksfjöldi í heiminum og aukin neysla matvæla. Þetta mun gerast samhliða því að hefðbundin fæðuframleiðslusvæði verða fyrir slæmum áhrifum af loftslagsbreytingum vegna hnattrænnar hlýnunar. Þá munu hin köldu, dreifbýlu lönd í norðri hlýna og verða góð landbúnaðarlönd, þar á meðal Ísland. Fólksfjölgun, hækkandi matvælaverð og óstöðugleiki á matvæla- og hráefnismörkuðum munu leiða af sér minnkandi fæðuöryggi og ljóst er að fæðuöryggi er á meðal mikilvægustu málefna sem ríkisstjórnir þurfa að glíma við á komandi árum.
Margir þættir geta stefnt fæðuöryggi Íslendinga í hættu, til að mynda náttúruhamfarir sem gætu m.a. skaðað dreifikerfi þau sem treyst er á, ekki síst þar sem dreifikerfin eru að stórum hluta til staðbundin, svo sem í Reykjavík. Búfjárstofnar hér á landi eru afar viðkvæmir fyrir mögulegum utanaðkomandi sýkingum og mikilvægt er að íslensk stjórnvöld geti gripið til nauðsynlegra ráðstafana til að vernda íslenska búfjárstofninn og tryggja þannig fæðuöryggi. Skortur á olíu getur haft gríðarleg áhrif á sjávarútveg og landbúnað og þar af leiðandi á fæðuöryggi þjóðarinnar. Bilanir í rafmagnskerfi landsins geta sömuleiðis valdið miklum skaða þar sem rafmagnið er undirstaða þeirra geymsluaðferða sem notaðar eru við varðveislu matarforða landsins. Jafnframt er hætta fólgin í því hversu mjög íslensk framleiðsla byggist á innflutningi, það takmarkar matvælaframleiðslu gríðarlega ef lokast fyrir innflutning auk þess sem litlar sem engar matarbirgðir eru að staðaldri í landinu og næsta ómögulegt að bregðast við ef skyndilegt neyðarástand skapast.
Ljóst er að íslenskur landbúnaður í heild er lykillinn að fæðuöryggi landsins, þ.e. að nægur matur sé til í landinu, ef þörf krefur. Afar mikilvægt er að halda fast á málum til að tryggja matvælaöryggi hér á landi. Það er því mat flutningsmanna að mikilvægt sé að framtíðarlandbúnaðarstefna landsins liggi fyrir með afmarkaðri heildrænni stefnumörkun í fæðu- og matvælaöryggismálum. Flutningsmenn vilja því undirstrika mikilvægi þess að stjórnvöld bregðist skjótt við og marki stefnu á þessu sviði.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 219 — 212. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um mótun stefnu um fæðuöryggi Íslands.
Flm.: Ásmundur Einar Daðason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
Sigurður Ingi Jóhannsson, Gunnar Bragi Sveinsson,
Birkir Jón Jónsson, Höskuldur Þórhallsson, Siv Friðleifsdóttir,
Eygló Harðardóttir, Vigdís Hauksdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að móta stefnu um fæðuöryggi Íslands, skilgreina ógnir við fæðuöryggi og undirbúa viðeigandi viðbrögð við þeim.
Greinargerð.