Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 76. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 257 — 76. mál.
1. Hvernig hefur þátttaka feðra í fæðingarorlofi þróast frá og með árinu 2007?
Tölulegar upplýsingar frá Fæðingarorlofssjóði sýna að feður hafa almennt nýtt réttindi sín til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði frá gildistöku laganna árið 2001. Árið 2003 öðluðust feður sambærilegan rétt og mæður til fæðingarorlofs þegar gildandi lög um fæðingar- og foreldraorlof komu að fullu til framkvæmda. Frá árinu 2004 til ársins 2009 fjölgaði feðrum sem fengu greiðslur í fæðingarorlofi ár frá ári, en þó einungis um 0,4% milli áranna 2008 og 2009. Hins vegar fækkaði þeim feðrum, sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, um 5,3% milli áranna 2009 og 2010. Milli áranna 2010 og 2011 fækkaði feðrum sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði um 10,2%. Þess ber þó að geta að hér er miðað við greiðsluár þannig að upplýsingarnar geta átt við um foreldra barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á rúmlega þriggja ára tímabili í ljósi þess tíma sem foreldrum er heimilt að nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs. Samkvæmt tölulegum upplýsingum frá Fæðingarorlofssjóði hefur orðið fækkun á meðalfjölda þeirra daga sem feður eru í fæðingarorlofi. Þannig lækkaði meðalfjöldi fæðingarorlofsdaga feðra úr 102 dögum árið 2008 niður í 99 daga árið 2009. Lækkunin hélt áfram árið 2010 en þá var meðalfjöldi daga, sem feður fengu greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði, 90 dagar og lækkaði í 82 daga árið 2011.
2. Hvert er mat ráðherra á áhrifum lækkaðs tekjuþaks á þátttöku feðra í fæðingarorlofi síðustu árin?
Ein leið til að meta hugsanleg áhrif lækkunar á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á fæðingarorlofstöku foreldra er að skoða hvort margir foreldrar hafi orðið fyrir skerðingum vegna lækkandi hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði miðað við þær greiðslur sem þeir hefðu að öðrum kosti fengið. Þegar litið er til tekjudreifingar kvenna og karla á innlendum vinnumarkaði hafa líkur þótt standa til þess að lægra hámark á greiðslum Fæðingarorlofssjóðs dragi frekar úr nýtingu feðra á rétti sínum til fæðingarorlofs heldur en mæðra þar sem karlar virðast enn að jafnaði hafa hærri laun en konur. Tölulegar upplýsingar sýna að hlutfallslega fleiri foreldrar hafa fengið greiddar hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á síðastliðnum árum samanborið við árin fyrir 2009 og jafnframt lægri greiðslur en sem nemur því hlutfalli af viðmiðunartekjum sem lögin gera ráð fyrir. Má því leiða að því líkur að sú staðreynd hafi þau áhrif að færri foreldrar taki fæðingarorlof en áður og þá einkum feður.
Ljóst er að ýmsir aðrir þættir kunna einnig að hafa haft áhrif á þá fækkun sem hefur orðið á töku fæðingarorlofs hjá feðrum síðustu fjögur árin. Ætla má að hinar miklu breytingar sem hafa orðið í íslensku samfélagi frá haustmánuðum árið 2008, ekki síst á innlendum vinnumarkaði, hafi haft áhrif á fæðingarorlofstöku feðra. Má í því sambandi nefna lækkun kaupmáttar, óöryggi á vinnumarkaði og auknar skuldir heimilanna. Er því mikilvægt að skoða nánar hvort fjárhæð tekna foreldra hafi áhrif á fæðingarorlofstöku þeirra þar sem ljóst er að lækkun á hámarksfjárhæð á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði hefur eingöngu áhrif á tekjuhærri hópa.
Feður, sem höfðu haft lægri tekjur en 400.000 kr. á viðmiðunartímabili og nýttu sér rétt sinn til fæðingarorlofs, fækkaði milli áranna 2008, 2009, 2010 og 2011 og er mesta fækkunin í tekjuhópunum 200–300.000 kr. og 300–400.000 kr. eins og sjá má í töflu 1. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2009 miðuðust við hærri meðalmánaðartekjur en 400.000 kr. og hefðu því ekki átt að hafa áhrif á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hjá foreldrum í þessum tekjuhópum. Má segja að sama eigi við um hámarksgreiðsluna vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á árinu 2010 en hámarksgreiðslan miðaðist þá við meðalmánaðarlaun að fjárhæð 387.000 kr. Verður því að ætla að aðrar ástæður en lækkun á hámarksgreiðslu Fæðingarorlofssjóðs hafi orðið til þess að draga úr fjölda þeirra feðra í þessum tekjuhópum sem tóku fæðingarorlof.
Svo virðist sem sú breyting að setja hámark á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði frá 1. janúar 2005 hafi orðið til þess að foreldrum með tekjur yfir 750.000 kr. hafi fækkað verulega innan fæðingarorlofskerfisins fram til ársins 2007 er þeim fjölgaði aftur. Svo virðist sem lækkun á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur árið 2009 hafi hins vegar ekki haft sömu áhrif á töku fæðingarorlofs hjá foreldrum í þessum tekjuhópi en bæði mæðrum og feðrum, sem nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs, fjölgar í þessum tekjuhópi milli áranna 2008 og 2009. Feður í tekjuhópnum 400–500.000 kr. og 500–750.000 kr. fjölgar milli áranna 2008 og 2009 en fækkar síðan aftur 2010 og 2011. Erfitt er að segja til um með vissu hver skýringin er á þessari þróun. Breytingar á hámarksfjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði höfðu einnig áhrif á greiðslur úr sjóðnum til mæðra líkt og feðra þó hlutfallslega færri mæður en feður hafi orðið fyrir þeim áhrifum. Án þess að unnt sé að fullyrða það með ákveðinni vissu þykja líkur benda til að þær efnahagslegu forsendur, sem breyttust hjá mörgum fjölskyldum í landinu í kjölfar efnahagsþrenginganna haustið 2008 sem og sú óvissa sem hefur ríkt á vinnumarkaði frá þeim tíma, kunni að hafa haft meiri áhrif á töku fæðingarorlofs feðra í framangreindum tekjuhópum en lækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.
3. Hvaða leiðir telur ráðherra árangursríkastar til að auka þátttöku feðra?
Ljóst er að ýmsir þættir hafa haft áhrif á þá fækkun sem hefur orðið á töku fæðingarorlofs hjá foreldrum. Ætla má að í þessu sambandi skipti máli jákvæð umræða um töku feðra á fæðingarorlofi sem og að tryggja að fæðingarorlofskerfið nái því markmiði sem því var ætlað að ná þannig að röskun á tekjuinnkomu heimilanna verði sem minnst þegar foreldrar þurfa að leggja niður störf vegna tilkomu barns sem þarfnast umönnunar þeirra. Því er brýnt að færa greiðslur í fæðingarorlofi nær sínu fyrra horfi þannig að sem flestir foreldrar fái 80% af meðalheildarlaunum á tilteknu viðmiðunartímabili. Þannig þarf að ráðast í endurreisn fæðingarorlofskerfisins sem fyrst þar sem hlutfall heildarlauna verður fært úr 75% í 80% af meðalheildartekjum umfram 200.000 kr. sem og að hækka hámarksgreiðslur þannig að meiri hluti foreldra, sem eru þátttakendur á vinnumarkaði, fái tekjur sínar sannanlega bættar.
Ætla verður að fleira geti komið til þannig að fleiri feður taki fæðingarorlof frá því sem nú er. Í því sambandi ber að nefna að ætla verður að batnandi staða á vinnumarkaði sem leiðir til meira öryggis um störfin hafi mikil áhrif. Enn fremur verður að ætla að fjárhagsaðstæður foreldra almennt hafi áhrif en niðurstöður nýrrar úttektar Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands sýna að skuldabyrði heimila hefur lækkað umtalsvert frá árinu 2009, eða um nærri fjórðung, bæði vegna afskrifta og verulegrar hækkunar á vaxtabótum. Þá verður að ætla að áform um að hækka barnabætur geti einnig haft áhrif á töku fæðingarorlofs feðra sem eiga fleiri börn en eitt.
4. Má vænta einhverra breytinga á fyrirkomulagi og skipan fæðingarorlofs á næstunni?
Á yfirstandandi þingi verða lagðar fram tillögur um endurreisn fæðingarorlofsins meðal annars með hækkun á hlutfalli viðmiðunartekna sem greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði miðast við og hámarksgreiðslna. Jafnframt verða lagðar til breytingar á lengingu orlofsins í tólf mánuði þar sem gert verður ráð fyrir að lengingin taki gildi í áföngum.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 257 — 76. mál.
Svar
velferðarráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Geirssonar um þátttöku feðra í fæðingarorlofi.

Tafla 1. Fjöldi feðra sem hafa fengið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur árin 2007--2011, raðað eftir tekjubilum.
| Fæðingarár | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 |
| Feður | |||||
| <100 þús. | 65 | 97 | 78 | 99 | 89 |
| 100–200 þús. | 479 | 347 | 348 | 331 | 255 |
| 200–300 þús. | 1.162 | 977 | 775 | 758 | 644 |
| 300–400 þús. | 979 | 1.097 | 955 | 932 | 839 |
| 400–500 þús. | 508 | 691 | 704 | 634 | 552 |
| 500–750 þús. | 396 | 625 | 742 | 621 | 504 |
| 750–1.000 þús. | 89 | 138 | 165 | 155 | 123 |
| >1.000 þús. | 50 | 78 | 106 | 97 | 79 |
| 3.728 | 4.050 | 3.873 | 3.627 | 3.085 | |
| Heimild: Fæðingarorlofssjóður. | |||||