Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 253. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 280  —  253. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslu fasteignagjalda til sveitarfélaga.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


     1.      Hver eru heildarfasteignagjöld ríkisins og ríkisfyrirtækja og stofnana á árinu 2012?
     2.      Hvernig skiptast þessi fasteignagjöld á einstök sveitarfélög og hvað greiðir hvert ríkisfyrirtæki og stofnun til hvers sveitarfélags fyrir sig?
     3.      Hvaða starfsemi ríkisins er undanþegin greiðslu fasteignagjalda?


Skriflegt svar óskast.