Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 289  —  260. mál.




Fyrirspurn



til forseta Alþingis um kostnað við embætti saksóknara Alþingis
vegna landsdómsmáls gegn Geir H. Haarde.

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.


    Hver var kostnaður við embætti saksóknara Alþingis á árunum 2010, 2011 og 2012 vegna landsdómsmálaferlanna gegn Geir H. Haarde? Svarið óskast sundurliðað sem hér segir:
     a.      laun starfsmanna,
     b.      húsnæðiskostnaður,
     c.      sérfræðikostnaður,
     d.      annar kostnaður, sundurgreindur.


Skriflegt svar óskast.