Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 285. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 318  —  285. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um hlutverk ofanflóðasjóðs.

Frá Merði Árnasyni.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að ofanflóðasjóði verði breytt í sjóð sem ætlað væri að veita fé til verkefna sem tengjast náttúruvá og almannavörnum, almannavarnasjóð?
     2.      Er hafin vinna í ráðuneytinu að endurskoðun löggjafar um framkvæmdir af þessu tagi, sbr. nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar í 374. máli 140. löggjafarþings (þskj. 751)?