Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 286. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 319  —  286. mál.




Frumvarp til laga


um breytingar á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur,
með síðari breytingum, lögum um Landsvirkjun, með síðari breytingum,
og fleiri lögum (breyting á tilgangi orkufyrirtækja.)

Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Kristján Þór Júlíusson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Ásbjörn Óttarsson, Birgir Þórarinsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
Illugi Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Árni Johnsen.


I. KAFLI
Breyting á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu
Reykjavíkur, nr. 139/2001, með síðari breytingum.

1. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.

II. KAFLI

Breyting á lögum um Landsvirkjun, nr. 42/1983, með síðari breytingum.

2. gr.

    Orðin „ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.

III. KAFLI
Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Hitaveitu
Suðurnesja, nr. 10/2001, með síðari breytingum
.
3. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi sem er ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 4. gr. laganna falla brott.

IV. KAFLI
Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Norðurorku,
nr. 159/2002, með síðari breytingum.

4. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 1. mgr. 3. gr. laganna falla brott.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Fyrirtækjum sem lög þessi taka til er heimilt að eiga áfram þær eignir sem keyptar hafa verið á grundvelli þeirra heimilda sem felldar eru brott með lögum þessum. Við kaup á eignum í þeirra stað skal farið eftir ákvæðum gildandi laga um fjárfestingarheimildir fyrirtækjanna.

Greinargerð.

    Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði laga um fyrirtæki á orkusviði er varða tilgang og fjárfestingarheimildir slíkra fyrirtækja verði þrengd. Sambærilegt frumvarp var fyrst lagt fram á 130. löggjafarþingi (þskj. 1869, 1010. mál.) Því var ætlað að tryggja að fyrirtæki á orkusviði gætu ekki stundað eða tekið þátt í starfsemi á sviðum sem ekkert eiga skylt við kjarnastarfsemi fyrirtækjanna og tilgang þeirra. Frumvarpið er jafnframt efnislega hið sama og breytingartillögur sem gerðar voru á 139. þingi við frumvarp til laga um breytingu á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, lögum um Landsvirkjun, lögum um samvinnufélög og lögum um sameignarfélög (stjórnarformaður, kynjahlutfall í stjórn) (þskj. 1166, 87. mál), sjá fylgiskjal II. Þær breytingartillögur tóku þó einungis til Landsvirkjunar og Orkuveitur Reykjavíkur í samræmi við efni frumvarpsins. Breytingartillögurnar voru felldar af meiri hluta þingsins.
    Frumvarpið nær nú til fjögurra fyrirtækja á orkusviði og er ætlað að tryggja að fyrirtækin taki ekki þátt í starfsemi sem er óskyld orkurekstri. Samkvæmt gildandi lögum um Landsvirkjun er tilgangur fyrirtækisins m.a. sagður vera „viðskipta- og fjármálastarfsemi“. Tilgangur Orkuveitunnar, Hitaveitu Suðurnesja og Norðurorku er samkvæmt gildandi lögum m.a „iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“.
    Við framlagningu málsins fyrir átta árum síðan var áréttað mikilvægi þess að breyta gildandi fyrirkomulagi en frumvarpið hlaut þó ekki afgreiðslu. Í greinargerð er bent á að reynslan hafi sýnt að ekki fari vel að orkufyrirtæki taki þátt í starfsemi sem er óskyld orkurekstri. Þar var jafnframt bent á að þó að mismunandi væri á milli fyrirtækja á orkusviði hvernig þau hafi nýtt rúmar heimildir laga til reksturs og fjárfestingar hafi eitt þeirra, Orkuveita Reykjavíkur, gengið hættulega langt. Fyrirtækið hafi farið út í alls óskyldan rekstur og greitt það dýru verði. Þar eru jafnframt nefnd dæmi um fjárfestingar sem Orkuveita Reykjavíkur hafði farið út í, svo sem rekstur net- og fjarskiptafyrirtækja, fiskeldi, risarækjueldi, hörverksmiðju og ljósmyndabanka.
    Ný skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur var kynnt 10. október sl. og fylgir frumvarpi þessu sem fylgiskjal I. Hún er mikill áfellisdómur yfir rekstri Orkuveitunnar og er í samræmi við þá gagnrýni sem kom fram í greinargerð með frumvarpi því sem var lagt var fram fyrir átta árum síðan. Jafnframt eru í skýrslunni lagðar til sams konar breytingar á fyrirkomulagi rekstrarins og lagðar voru til í frumvarpinu og í breytingartillögunum sem lagðar voru fram fyrir tveimur árum en voru felldar af meiri hluta þings 11. maí 2011.
    Samkvæmt frumvarpinu er starfssvið Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur þrengt. Fyrirtækjunum er þó heimilað samkvæmt ákvæði til bráðabirgða að eiga áfram þær eignir sem þau hafa þegar fjárfest í á grundvelli gildandi laga. Við sölu slíkra eigna og endurfjárfestingar er fyrirtækjunum þó gert skylt að fylgja gildandi lögum á hverjum tíma.


Fylgiskjal I.


Skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur.

(Október 2012.)


www.reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/or-uttekt/OR-Uttektarskyrslan_2012.pdf




Fylgiskjal II.



Breytingartillögur minni hluta viðskiptanefndar (GÞÞ, SKK) við frumvarp til laga um breytingu á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, lögum um Landsvirkjun, lögum um samvinnufélög og lögum um sameignarfélög (stjórnarformaður, kynjahlutfall í stjórn).


(Þskj. 1166 á 139. löggjafarþingi.)


     1.      Á undan 1. gr. komi ný grein, 1. gr., svohljóðandi:
                  Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.
     2.      Á eftir 2. gr. komi ný grein, 4. gr., svohljóðandi:
                  Orðin „ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.
     3.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun er heimilt að eiga áfram þær eignir sem keyptar hafa verið á grundvelli þeirra heimilda sem felldar eru brott í 1. og 4. gr. Við kaup á eign í þeirra stað skal farið eftir ákvæðum gildandi laga um fjárfestingarheimildir fyrirtækjanna.