Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 292. máls.

Þingskjal 325  —  292. mál.



Frumvarp til laga

um breyting á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála,
með síðari breytingum (skilyrði fyrir
beitingu úrræða skv. XI. kafla).

(Lagt fyrir Alþingi á 141. löggjafarþingi 2012–2013.)




1. gr.

    2. mgr. 83. gr. laganna orðast svo:
    Auk þess sem segir í 1. mgr. verða þau skilyrði að vera fyrir hendi svo að gripið verði til aðgerða skv. 81. gr. og 1. mgr. 82. gr. að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi og að ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess. Með sama skilorði verður gripið til þessara aðgerða ef rannsókn beinist að broti á 175. gr. a, 206., 210. og 226. gr., 1. mgr. 232. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Frumvarp þetta er samið af réttarfarsnefnd að beiðni innanríkisráðherra. Með frumvarpinu er leitast við að setja skýrari skilyrði fyrir beitingu þeirra aðgerða sem kveðið er á um í 81. gr. og 1. mgr. 82. gr. laganna.
    Samkvæmt 81. og 82. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er lögreglu heimilt að grípa til tiltekinna aðgerða í þágu rannsóknar, að uppfylltum þeim skilyrðum sem kveðið er á um í 83. gr. og 1. mgr. 84. gr. laganna. Þær aðgerðir, sem hér um ræðir, eru símahlustun, sbr. 81. gr., upptaka á hljóðum og merkjum, sbr. a-lið, taka ljósmynda og kvikmynda, sbr. b-lið, og notkun eftirfararbúnaðar, sbr. c-lið 1. mgr. 82. gr. Þessar aðgerðir skerða friðhelgi einkalífs á mjög tilfinnanlegan hátt þar sem þær eiga það allar sameiginlegt að til þeirra verður aðeins gripið að þeir sem þær beinast að viti ekki af þeim. Af þeim sökum er því ástæða til að setja þeim ströng skilyrði.
    Samkvæmt 1. mgr. 84. gr. laga nr. 88/2008 verður umræddum aðgerðum einungis beitt á grundvelli dómsúrskurðar, enda sé ástæða til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þeim hætti, sbr. 1. mgr. 83. gr. laganna. Að auki er það gert að skilyrði skv. 2. mgr. þeirrar greinar að rannsókn beinist að broti, sem varðað getur að lögum átta ára fangelsi, ellegar að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist þess. Eins og síðastnefnt ákvæði er orðað er þannig nægilegt samkvæmt núgildandi lögum, til þess að dómari veiti lögreglu heimild til símahlustunar, að brot, sem til rannsóknar er, geti fallið undir refsiákvæði þar sem refsiramminn nær átta ára fangelsi, að því tilskildu að mikilsverðar upplýsingar fyrir rannsókn málsins fáist með þeim hætti. Einnig nægir að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist þess að til slíkrar aðgerðar verði gripið, jafnvel þótt rannsókn beinist að broti sem aðeins getur varðað sektum.
    Á síðustu árum hefur komið fram sú gagnrýni að skilyrði fyrir heimildum til símahlustana og skyldra aðgerða séu ekki nógu skýr og því sé heimild til slíkra aðgerða veitt í meira mæli en nauðsyn væri og án nægilegs rökstuðnings. Ástæða er til að skýrar reglur gildi um heimildir til beitingar aðgerða á borð við símahlustun og skyldra aðgerða svo að ekki verði gripið til svo afdrifaríkrar skerðingar á friðhelgi einkalífs manna sem þær hafa í för með sér nema brýna nauðsyn beri til og þá aðeins í því skyni að upplýsa alvarleg brot. Með þessu frumvarpi er lagt til að 2. mgr. 83. gr. laga nr. 88/2008 verði breytt á þann veg að því aðeins megi veita lögreglu heimild til símahlustunar og skyldra aðgerða að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi og að auki verði ríkir almanna- eða einkahagsmunir að krefjast þess. Þó er gert ráð fyrir að frá fyrrgreindri meginreglu megi víkja ef til rannsóknar eru tiltekin brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi eða beinast gegn friðhelgi einkalífs, frjálsræði eða persónuvernd, enda þótt refsiramminn nái ekki sex ára fangelsi, að því tilskildu að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist þess að gripið verði til aðgerðar á borð við símahlustun í því skyni að upplýsa brotin. Þannig verður kveðið með skýrari hætti en áður á um heimildir lögreglu til rannsókna á skipulagðri brotastarfsemi.
    Nái frumvarp þetta fram að ganga yrði heimild lögreglu til að beita símahlustun og skyldum aðgerðum við rannsókn mála verulega þrengd, ekki síst fyrir þá sök að sú heimild yrði í öllum tilvikum að réttlætast af því að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefðust þess. Eins og nánar er gerð grein fyrir hér á eftir yrði dómari samkvæmt því að vega og meta hverju sinni þá hagsmuni sem byggju að baki kröfu um heimild til slíkrar aðgerðar, í ljósi þeirra hagsmuna sem kynnu að verða skertir vegna hennar. Einungis í þeim tilvikum að fyrrgreindir hagsmunir væru augljóslega brýnni en þeir síðarnefndu ætti dómari að fallast á kröfu lögreglu um heimild til að beita aðgerðinni í þágu rannsóknar.
    Samkvæmt 1. mgr. 83. gr. laga nr. 88/2008 er það skilyrði fyrir aðgerðum sem taldar eru upp í 80.–82. gr. að ástæða sé til að ætla að upplýsingar, sem skipt geta miklu fyrir rannsókn máls, fáist með þeim hætti. Að auki eru í 2. mgr. 83. gr. sett þau skilyrði fyrir rannsóknaraðgerðum skv. 81. gr. og 1. mgr. 82. gr. að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum átta ára fangelsi eða að ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir krefjist þess. Eins og gerð er grein fyrir hér að framan er lagt til að skilyrði fyrir aðgerðum þessum verði þrengd þannig að heimild til að beita þeim verði einskorðuð við það að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi, enda krefjist ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir þess. Óhjákvæmilegt getur verið að grípa til umræddra aðgerða til þess að upplýsa ýmis brot sem varðað geta slíkri refsingu, svo sem brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, auðgunarbrot, t.d. fjársvik, umboðssvik eða skilasvik skv. 248.–250. gr. almennra hegningarlaga og peningaþvætti skv. 264. gr. laganna. Enn fremur er gert ráð fyrir að heimilt verði að beita aðgerðunum ef rannsókn beinist að nánar tilteknum brotum samkvæmt almennum hegningarlögum þótt þau varði lægri refsingu en sex ára fangelsi. Er þá horft til þess að rannsókn miði að því að upplýsa brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi eða beinast gegn friðhelgi einkalífs, frjálsræði og persónuvernd. Undir fyrrgreinda flokkinn fellur þátttaka í skipulagðri brotastarfsemi, sbr. 175. gr. a, vændi, sbr. 206. gr., og klám, sbr. 210. gr., þ.m.t. vörslur og dreifing barnakláms, sbr. niðurlag 2. mgr. og 4. mgr. greinarinnar. Í síðarnefnda flokkinn fellur frelsissvipting, sbr. 226. gr., brot gegn nálgunarbanni, sbr. 1. mgr. 232. gr., og hótanir, sbr. 233. gr. almennra hegningarlaga.
    Samkvæmt framansögðu er gert ráð fyrir að ekki sé nóg að rannsókn beinist að broti þar sem refsiramminn er allt að sex ára fangelsi eða broti á einhverri af þeim greinum almennra hegningarlaga sem taldar eru upp að framan, heldur verði að auki að vera í húfi ríkir almanna- eða einkahagsmunir til þess að grípa megi til aðgerða skv. 82. og 83. gr. á grundvelli dómsúrskurðar skv. 84. gr. Að því tilskildu að ætlað brot sé þess eðlis sem að framan greinir þarf dómari því að vega og meta, þegar hann tekur afstöðu til kröfu um aðgerð af þessum toga, hvort sú skerðing á friðhelgi einkalífs, sem óhjákvæmilega leiðir af þeirri aðgerð, verði réttlætt vegna rannsóknarhagsmuna er séu enn brýnni í viðleitni til að upplýsa málið. Þótt niðurstaðan ráðist að sjálfsögðu af heildarmati á öllum aðstæðum hverju sinni má hafa við það mat hliðsjón af eftirfarandi sjónarmiðum, en á sumum þeirra er byggt í dómum Hæstaréttar þar sem reyndi á skýringu áskilnaðar b-liðar 2. mgr. 87. gr. eldri laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, um ríka almanna- eða einkahagsmuni.
    Það sem án efa skiptir mestu máli í þessu sambandi eru þeir hagsmunir sem í húfi eru hvort sem er fyrir allan almenning eða fyrir þann sem telur sig hafa orðið fyrir misgerð eða fjárhagstjóni af völdum ætlaðs brots. Eftir því sem þessir hagsmunir eru álitnir ríkari þeim mun meiri ástæða er til að fallast á kröfu um aðgerð. Við það mat má m.a. hafa hliðsjón af þeirri refsingu sem líklega yrði dæmd ef brotið teldist sannað. Einnig er rétt að líta til umfangs málsins. T.d. væri fremur ástæða að fallast á kröfu ef rannsókn beindist að skipulagðri brotastarfsemi en einu afmörkuðu broti. Ef hagsmunirnir eru lítilfjörlegir, jafnvel þótt hin ætlaða háttsemi falli undir eitthvert af refsiákvæðunum sem vísað er til að framan, ætti að öðru jöfnu að hafna kröfunni, sbr. H 2001, 2347 í máli nr. 193/2001, H 2004, 4307 í máli nr. 450/2004 og H 2005, 1612 í máli nr. 168/2005. Þá geta hagsmunirnir verið margvíslegir, svo sem yfirvofandi almannahætta, andleg eða líkamleg heilsa og fjárhagsmunir, svo að einhver dæmi séu nefnd. Þótt nægi að í húfi séu annaðhvort ríkir almannahagsmunir eða einkahagsmunir til þess að krafa sé tekin til greina er stundum erfitt að greina á milli þessa. Séu þessir hagsmunir hvorir tveggja til staðar ætti það fremur að leiða til þess að krafan yrði tekin til greina. Í samræmi við 1. mgr. 83. gr., þar sem gert er að skilyrði fyrir fyrrgreindum aðgerðum að ástæða sé til að ætla að mikilvægar upplýsingar fyrir rannsókn máls fáist með þeim hætti, getur það ráðið úrslitum við mat á því hvort um sé að ræða ríka hagsmuni í skilningi 2. mgr. að ekki sé unnt að upplýsa brot sem til rannsóknar er nema með aðgerðum sem þessum, svo sem sjá má af H 1998, 3740 í máli nr. 448/1998. Eftir því sem lengri tími er liðinn frá því að hið ætlaða brot var framið mælir þetta sama sjónarmið á móti því að krafa um slíka aðgerð yrði tekin til greina, sbr. H 2004, 4307 í máli nr. 450/2004. Ef áhöld eru um hvort heimila skuli aðgerð er rétt að dómari horfi til eðlis og umfangs fyrirhugaðrar aðgerðar. Ef ætlunin er að hún beinist t.d. aðeins að einum sakborningi og standi skamman tíma getur verið réttlætanlegt að heimila hana í slíkum tilvikum.



Fylgiskjal.


Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008,
um meðferð sakamála, með síðari breytingum
(skilyrði fyrir beitingu úrræða skv. XI. kafla).

    Með frumvarpinu er leitast við að setja skýrari skilyrði fyrir beitingu tiltekinna aðgerða í þágu rannsóknar, að uppfylltum viðeigandi skilyrðum. Þær aðgerðir, sem hér um ræðir, eru símahlustun, upptaka á hljóðum og merkjum, taka ljósmynda og kvikmynda og notkun eftirfararbúnaðar. Þessar aðgerðir skerða friðhelgi einkalífs þar sem þær eiga það sameiginlegt að til þeirra verður aðeins gripið að þeir sem þær beinast að viti ekki af þeim. Af þeim sökum þykir vera ástæða til að setja þeim ströng skilyrði.
    Í frumvarpinu er lagt til að lögum um meðferð sakamála verði breytt á þann veg að því aðeins megi veita lögreglu heimild til símahlustunar og skyldra aðgerða að rannsókn beinist að broti sem varðað getur að lögum sex ára fangelsi, í stað átta ára áður, og að auki verði ríkir almanna- eða einkahagsmunir að krefjast þess. Þó er gert ráð fyrir að frá fyrrgreindri meginreglu megi víkja ef til rannsóknar eru tiltekin brot sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi eða beinast gegn friðhelgi einkalífs, frjálsræði eða persónuvernd, að því tilskildu að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefjist þess að gripið verði til aðgerðar á borð við símahlustun í því skyni að upplýsa brotin. Þannig verði kveðið með skýrari hætti en áður á um heimildir lögreglu til rannsókna á skipulagðri brotastarfsemi.
    Nái frumvarp þetta fram að ganga yrði heimild lögreglu til að beita símahlustun og skyldum aðgerðum við rannsókn mála þrengd, ekki síst fyrir þá sök að sú heimild yrði í öllum tilvikum að réttlætast af því að ríkir almanna- eða einkahagsmunir krefðust þess. Eins og nánar er gerð grein fyrir í athugasemdum við frumvarpið yrði dómari samkvæmt því að vega og meta hverju sinni þá hagsmuni sem byggju að baki kröfu um heimild til slíkrar aðgerðar í ljósi þeirra hagsmuna sem kynnu að verða skertir vegna hennar. Einungis í þeim tilvikum að fyrrgreindu hagsmunirnir væru augljóslega brýnni en þeir síðarnefndu ætti dómari að fallast á kröfu lögreglu um heimild til að beita aðgerðinni í þágu rannsóknar.
    Ekki verður séð að lögfesting á frumvarpinu hafi í för með sér teljandi áhrif á útgjöld ríkissjóðs en þau ættu þó frekar að vera til lækkunar ef úrræðum eins og símahlustun verður beitt í minni mæli en verið hefur. Í frumvarpinu er fyrst og fremst verið að skýra og þrengja heimildir til að krefjast tiltekinna rannsóknaraðgerða. Ekki er þó talið að það leiði til þess að beiðnum um það til dómstóla muni fækka því lögregla mun væntanlega láta reyna á heimildir til að fá að beita þessum aðgerðum.