Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 167. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 363 — 167. mál.
1. Hversu margar sjálfstæðar og óháðar úrskurðarnefndir eru starfandi á vegum ráðuneytisins, hvað heita þær og hver eru verkefni þeirra?
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála: Skv. 13. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003, er heimilt að kæra ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er málsmeðferð eða efni ákvörðunar.
Yfirfasteignamatsnefnd: Yfirfasteignamatsnefnd er ætlað að annast yfirmat fasteigna fyrir landið allt. Í 34. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, er kveðið á um að hagsmunaaðilar geti kært niðurstöðu endurmats til yfirfasteignamatsnefndar.
Örorkumatsnefnd: Örorkunefnd starfar á grundvelli 10. gr. skaðabótalaga, nr. 50/1993. Meginverkefni nefndarinnar er eftirfarandi:
Þegar fyrir liggur sérfræðilegt álit um örorku- og/eða miskastig tjónþola, eða læknisfræðilega þætti skv. 2. mgr. 3. gr. laganna, sem meta þarf til að uppgjör bóta samkvæmt lögum þessum geti farið fram, getur hvor um sig, tjónþoli eða sá sem krafinn er bóta, borið álitið undir örorkunefnd. Heimilt er að óska álits örorkunefndar um ákvörðun örorku- og/eða miskastigs án þess að fyrir liggi sérfræðilegt álit, ef málsaðilar standa sameiginlega að slíkri beiðni. Annað verkefni nefndarinnar er að semja töflur um miskastig.
Matsnefnd eignarnámsbóta: Matsnefnd eignarnámsbóta starfar samkvæmt lögum nr. 11/1973, um framkvæmd eignarnáms. Skv. 1. mgr. 2. gr. nefndra laga sker nefndin úr ágreiningi um eignarnámsbætur og annað endurgjald, sem ákveða á samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms.
Nefnd um dómarastörf: Nefnd um dómarastörf setur almennar reglur um hvers konar aukastörf geti samrýmst embættisstörfum dómara.
Nefnd um dómarastörf setur almennar reglur um að hvaða marki samrýmanlegt sé embætti dómara að hann eigi hlut í félagi eða atvinnufyrirtæki.
Nefnd um dómarastörf fjallar um skriflegar kvartanir frá hverjum þeim sem telur dómara hafa gert á hans hlut með störfum sínum.
Úrskurðarnefnd um sanngirnisbætur: Nefndin starfar á grundvelli laga nr. 47/2010, um sanngirnisbætur, vegna bóta til þeirra sem sættu illri meðferð við vistun á stofnunum eða heimilum á vegum ríkisins.Tjónþoli getur hafnað sáttaboði sýslumanns um sanngirnisbætur eða samþykkt það. Hafni hann boðinu, eða hafi kröfu hans verið hafnað, getur hann innan þriggja mánaða skotið málinu til úrskurðarnefndar. Skal nefndin yfirfara kröfuna og öll gögn með ítarlegum hætti og kveða upp úrskurð.
2. Hver var heildarkostnaður ríkisins af starfsemi nefndanna árin 2009, 2010 og 2011, sundurliðað á hverja nefnd fyrir sig?
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 363 — 167. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um úrskurðarnefndir.

Heildarkostnaður af starfsemi nefndanna 2009–2011, sundurliðað á hverja nefnd.
| Tekjur | Gjöld | Alls | |
| 2009 | |||
| Úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála | 0 | 1.561.366 | 1.561.366 |
| Yfirfasteignamatsnefnd | 0 | 1.995.991 | 1.995.991 |
| Örorkumatsnefnd | 22.235.000 | 23.648.312 | 1.413.312 |
| Matsnefnd eignarnámsbóta | 10.350.840 | 11.058.187 | 707.347 |
| Nefnd um dómastörf | 0 | 5.113.759 | 5.113.759 |
| Sanngirnisbætur vegna misgjörða á vistheimilum fyrir börn | 0 | 0 | 0 |
| 2010 | |||
| Úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála | 0 | 2.534.590 | 2.534.590 |
| Yfirfasteignamatsnefnd | 0 | 12.650.000 | 12.650.000 |
| Örorkumatsnefnd | 16.750.000 | 16.162.878 | -586.122 |
| Matsnefnd eignarnámsbóta | 3.809.400 | 5.968.422 | 2.159.022 |
| Nefnd um dómastörf | 0 | 3.789.771 | 3.789.771 |
| Sanngirnisbætur vegna misgjörða á vistheimilum fyrir börn | 0 | 4.647.195 | 4.647.195 |
| 2011 | |||
| Úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála | 0 | 6.288.311 | 6.288.311 |
| Yfirfasteignamatsnefnd | 0 | 8.987.530 | 8.987.530 |
| Örorkumatsnefnd | 22.175.000 | 22.168.426 | -6.574 |
| Matsnefnd eignarnámsbóta | 1.021.384 | 4.773.379 | 3.751.991 |
| Nefnd um dómastörf | 0 | 2.061.086 | 2.061.086 |
| Sanngirnisbætur vegna misgjörða á vistheimilum fyrir börn | 0 | 16.303.855 | 16.303.855 |