Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 321. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 368 — 321. mál.
Frumvarpi þessu er ætlað að tryggja markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, sem er skv. 1. gr. þeirra „að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins“. Í 15. gr. sömu laga segir enn fremur: „Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða.“
Brögð eru þó að því að ekki sé ávallt farið eftir þessari grein og að halli enn á hlut kvenna í mikilvægum nefndum á vegum hins opinbera.
Í 4. gr. a laga um dómstóla, nr. 15/1998, segir: „Ráðherra skipar fimm menn í dómnefnd til að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttardómara og héraðsdómara. Tveir nefndarmanna skulu tilnefndir af Hæstarétti, þar af annar þeirra sem formaður nefndarinnar, og skal að minnsta kosti annar þeirra ekki vera starfandi dómari. Tilnefnir dómstólaráð þriðja nefndarmanninn en Lögmannafélag Íslands þann fjórða. Fimmti nefndarmaðurinn skal kosinn af Alþingi. Varamenn skulu tilnefndir og skipaðir á sama hátt.“
Nú háttar svo til að í umræddri dómnefnd um dómarastöður sitja fjórir karlar en aðeins ein kona, sem er fulltrúi Alþingis. Því hafa allir aðrir tilnefningaraðilar aðeins tilnefnt karla í hana og því ekki tekið tillit til 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Má því segja að jafnvel Hæstiréttur virðist túlka það svo að þau lög gildi ekki um dómstólalögin. Þessu frumvarpi er ætlað að taka af allan vafa um að sú túlkun standist ekki heldur verði að gæta þess að hlutfall hvors kyns fari ekki undir 40% í þeirri dómnefnd sem hér um ræðir.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 368 — 321. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 15/1998, um dómstóla, með síðari breytingum
(skipan í dómnefnd um dómarastöður).
Flm.: Árni Þór Sigurðsson, Eygló Harðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Siv Friðleifsdóttir, Álfheiður Ingadóttir.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.