Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 368. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 426 — 368. mál.
1. Hvaða vöktun hefur farið fram á umhverfisáhrifum álvers Alcoa í Reyðarfirði frá því að rekstur álbræðslu fyrirtækisins hófst árið 2007?
2. Hefur farið fram úttekt á samfélagslegum áhrifum álbræðslunnar, eins og fyrirhugað var? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður?
3. Hvernig er háttað meðferð úrgangs, rafskauta o.fl. frá álbræðslunni, vöktun eftirlitsmælinga og rekstri og viðhaldi mengunarvarnarbúnaðar?
4. Hverjar eru árlegar niðurstöður mælinga á mengun og umhverfisáhrifum álbræðslunnar?
5. Hver er árleg losun álbræðslunnar á óhreinsuðu brennisteinsdíoxíði og loftkenndu flúoríði í andrúmsloftið?
6. Hefur styrkur óhreinsaðs brennisteinsdíoxíðs og loftkennds flúoríðs verið undir umhverfismörkum samkvæmt umhverfismati og starfsleyfi frá því að starfsemi álbræðslunnar hófst?
7. Hver hefur verið meðaltalsstyrkur loftkennds flúoríðs 1. apríl til 30. september ár hvert, innan og utan þynningarsvæðis verksmiðjunnar?
8. Hvert hefur verið árlegt magn svifryks, kolefnissambanda og annarra gróðurhúsalofttegunda frá álbræðslunni?
9. Hvað olli flúormengun í heyfeng í Reyðarfirði síðastliðið sumar?
10. Hefur mælst flúormengun í gróðri í Reyðarfirði, svo sem í mosa, fléttum og beitargróðri?
Skriflegt svar óskast.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 426 — 368. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um álver Alcoa í Reyðarfirði.
Frá Atla Gíslasyni.