Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 224. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 433  —  224. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um snjómokstur.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða reglur gilda um snjómokstur á svokölluðum héraðsvegum? Sundurliðun óskast eftir umdæmum Vegagerðarinnar ef um mismunandi reglur er að ræða.

    Í     2. mgr. 44. gr. vegalaga, nr. 80/2007, er Vegagerðinni veitt heimild til að binda vetrarþjónustu á einstökum vegaköflum því skilyrði að allur kostnaður eða hluti hans verði greiddur með framlagi sveitarfélags eða hagsmunaaðila.
    Vegagerðin hefur skilgreint þá vegi þar sem heimilt er að beita svokallaðri helmingamokstursreglu. Þá vegi er heimilt að moka með kostnaðarþátttöku Vegagerðarinnar að hámarki þrisvar sinnum í viku, meðan fært þykir vegna veðráttu og snjóþyngsla. Vegagerðin greiðir þá helming kostnaðar þegar beðið hefur verið um moksturinn og greiðsla mótaðila hefur verið tryggð, enda komi moksturinn fleiri vegfarendum til góða en þeim sem um hann biður. Óskir sveitarfélaga um slíkan mokstur skal að jafnaði ganga fyrir óskum einstaklinga.
    Almennt falla héraðsvegir ekki undir helmingamokstursregluna og eru því ekki mokaðir með kostnaðarþátttöku Vegagerðarinnar. Þó er sú undantekning gerð, að þeir héraðsvegir sem voru tengivegir fyrir 1. janúar 2008, þ.e. áður en ný vegalög tóku gildi, eru mokaðir samkvæmt helmingamokstursreglu, ef þess er óskað.