Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 376. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 439  —  376. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um atvinnuleysisbætur og atvinnuleitendur.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hvað hefur mörgum verið synjað um atvinnuleysisbætur frá 2008, sundurliðað eftir árum, kyni og aldri?
     2.      Hverjar eru helstu ástæður þess að atvinnuleitendum er synjað um atvinnuleysisbætur?
     3.      Hvað hafa margir nýtt sér úrræði um nám á atvinnuleysisbótum?
     4.      Hvað hafa margir nýtt sér úrræði um atvinnu með atvinnuleysisbótum? Hve margir þeirra nýta úrræðið í nýsköpunarfyrirtækjum?


Skriflegt svar óskast.