Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 398. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 477  —  398. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um sérstaka dreifingu
á upplýsingum úr álagningarskrám.

Frá Sigríði Á. Andersen.


     1.      Er skattstjóra heimilt án sérstakrar lagaheimildar að gera og birta opinberlega lista yfir annars vegar þá einstaklinga og hins vegar þá lögaðila sem hæstir skattar hafa verið lagðir á samkvæmt álagningarskrám hvers árs?
     2.      Er slík heimild, óháð svari við 1. tölul., fyrir hendi í gildandi lögum og þá hvar?


Skriflegt svar óskast.