Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 402. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 481 — 402. mál.
Hvað er áætlað að ríkið hafi sparað sér mikil útgjöld frá 1. júlí 2009 til 1. nóvember 2012 í almannatryggingakerfinu vegna þeirrar breytingar sem gerð var á lögum um almannatryggingar 1. janúar 2009 og fól í sér að bætur almannatrygginga hækkuðu ekki í samræmi við vísitölu neysluverðs, líkt og þó er mælt fyrir um í lögunum:
a. hjá eldri borgurum, sundurliðað eftir kyni og bótaflokkum,
b. hjá öryrkjum, sundurliðað eftir kyni og bótaflokkum?
Skriflegt svar óskast.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 481 — 402. mál.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um útgjaldasparnað í almannatryggingakerfinu.
Frá Vigdísi Hauksdóttur.