Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 208. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 501  —  208. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar
um dóms- og löggjafarvald og ESB.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða áhrif hefði hugsanleg innganga í Evrópusambandið á dóms- og löggjafarvald hér á landi?

    Samstarf innan Evrópusamstarfsins gengur lengra en hefðbundið ríkjasamstarf. Þannig eru ýmsum stofnunum Evrópusambandsins, svo sem Evrópuþinginu og dómstól Evrópusambandsins, veittar heimildir til að taka ákvarðanir á sviði löggjafarvalds og dómsvalds sem eru bindandi fyrir aðildarríkin sem og einstaklinga og lögaðila í ríkjum sambandsins. Slíkt framsal ríkisvalds krefst skoðunar á ákvæðum stjórnarskrárinnar er varða framsal ríkisvalds.
    Eins og fram kemur í svari forsætisráðherra við fyrirspurn í 207. máli (þskj. 365) fela aðildarviðræður þær sem nú standa í sér ítarlega skoðun á íslenskri löggjöf og samanburði hennar við löggjöf og regluverk Evrópusambandsins. Samninganefnd skipuð af utanríkisráðherra er aðalsamningamanni til ráðgjafar og stuðnings, en sérstakur samningahópur er starfandi sem er til ráðgjafar um öll lagaleg málefni sem aðalsamningamaður eða einstakir samningahópar telja nauðsynlegt að afla álits á. Eins og fram kemur í svari forsætisráðherra hefur samningahópurinn unnið að samantekt varðandi álitamál um stjórnarskrárbreytingar. Er þar m.a. að finna umfjöllun um breytingar á stjórnarskránni er varða heimildir til framsals ríkisvalds.