Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 430. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 538  —  430. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við skattamál
í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.

Frá Jóni Bjarnasyni.


     1.      Hver er áætlaður tímaskiptur kostnaður við aðlögunarvinnu íslenskra stjórnvalda að Evrópusambandinu vegna 16. samningskafla aðildarviðræðnanna um skattamál, m.a. við:
                  a.      starfshóp um endurskoðun laga um virðisaukaskatt sem undirbýr nauðsynlega löggjöf til að samræma virðisaukaskattslöggjöf á Íslandi við regluverk Evrópusambandsins og rita lokaskýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra til samþykktar fyrir lok árs 2013 ásamt ítarlegri tíma- og aðgerðaáætlun,
                  b.      starfshóp um endurskoðun laga um vörugjöld sem undirbýr nauðsynlegar lagabreytingar til að eyða ósamræmi milli íslenskrar skattalöggjafar um orkuvörur og reglna sem kveðið er á um í tilskipun 2003/96/EB,
                  c.      vinnuhóp um undirbúning mögulegs flutnings á umsjón með vörugjaldi af innlendum framleiðsluvörum frá ríkisskattstjóra til tollstjóra og aðgerðaáætlun þar um,
                  d.      vinnu vegna heildstæðrar aðgerðaáætlunar til að efla stjórnsýslu- og framkvæmdagetu íslenskra skattyfirvalda með það að markmiði að þau verði tilbúin í síðasta lagi á aðildardegi,
                  e.      vinnu á vegum ríkisskattstjóra við að semja framkvæmdaáætlun með tíma- og aðgerðaáætlun til að gera kerfi rekstrarsamhæfð og samtengjanleg kerfum Evrópusambandsins í samræmi við kröfur þess, þ.m.t. þjálfun starfsmanna?
     2.      Eru fleiri hópar en framangreindir að vinnu vegna skattamála í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusambandinu, til að mynda um þverlæg málefni?
     3.      Hverjir eru áfangar í vinnu hópanna og hver eru tímamörk þeirra, er vinnan hafin, hvenær á henni að ljúka og hvenær er gert ráð fyrir að innleiðingu verði lokið?
     4.      Hefur ráðuneytið metið kostnað við þessi tímasettu loforð í heild sinni, liggur matið fyrir, og hvar er gerð grein fyrir þeim kostnaði í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013? Verður gert ráð fyrir honum í útgjaldaáætlun fyrir 2014 og í áætlun um ríkisfjármál, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum fyrir hvern hóp, þ.m.t. áætlaður eða fyrirhugaður kostnaður.


Skriflegt svar óskast.


    Greinargerð.


    Samningsafstaða Íslendinga í 16. kafla, um skattamál, hefur nýlega verið afgreidd af hálfu ríkisstjórnarinnar og send Evrópusambandinu. Þar eru gefnar skuldbindandi yfirlýsingar um aðlögun og formlegan undirbúning aðildar í þessum málaflokki. Efni 16. kafla, um skattamál, er ekki hluti af EES-samningnum og stofnanarammi, bókhalds- og tölvukerfi ESB á þessu sviði eru allt annars konar en nú er hér á landi. Skuldbindandi yfirlýsingum og aðlögun íslenskra stjórnvalda er því beinlínis ætlað að uppfylla kröfur ESB í samningaviðræðunum: „Ísland mun hafa innleitt allt útistandandi regluverk og sett upp nauðsynlegan stofnanaramma og fyllilega rekstrarhæf tölvukerfi sem gera samhæfingu og samtengingu við viðkomandi kerfi Evrópusambandsins mögulega við aðild.“ Mikilvægt er að kostnaðarmat á slíkum loforðum liggi fyrir áður en þau eru gefin.