Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 434. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 542  —  434. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við breytingar á tölvukerfum á
sviði tolla í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.

Frá Jóni Bjarnasyni.


     1.      Hver er kostnaðurinn við aðlögunarvinnu íslenskra stjórnvalda að Evrópusambandinu vegna breytinga á tölvukerfum á sviði tolla vegna 29. samningskafla aðildarviðræðnanna um tollabandalag, m.a. við:
                  a.      aðlögun að sameiginlegri tollskrá Evrópusambandsins (CCT),
                  b.      rafrænt tollskrárkerfi Evrópusambandsins (TARIC),
                  c.      eftirlits- og innflutningskvótakerfið (TQS),
                  d.      sameiginlega samskiptanetið (CCN/CSI),
                  e.      hið nýja tölvukerfi fyrir umflutning (NCTS),
                  f.      hina samþættu stjórnun gjaldheimtukerfis (ITMS),
                  g.      útflutningseftirlitskerfið (ECS),
                  h.      innflutningseftirlitskerfið (ICS),
                  i.      kerfið fyrir viðurkennda rekstraraðila (EOS),
                  j.      önnur undirkerfi hins samræmda tollstjórnarkerfis (ITMS)?
     2.      Eru fleiri verkefni vegna breytinga á tölvukerfum á sviði tolla í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusambandinu en framangreind, til að mynda þverlæg?
     3.      Hver er kostnaðurinn við að efla stjórnsýslugetu embættis ríkisskattstjóra og tollstjóra vegna þessara verkefna á sviði tölvukerfa með ráðningum og þjálfun starfsmanna?
     4.      Hvaða tæknibúnað þarf vegna þessara verkefna og í hvaða áföngum hefur verið lofað að taka hann upp miðað við tímasett loforð?
     5.      Hverjir eru áfangar og tímamörk fyrir verkefnin, er vinna við þau hafin, hvenær á þeim að ljúka og hvenær er gert ráð fyrir að innleiðingu verði lokið?
     6.      Í hvaða tilvikum er stuðst við útvistunarsamninga vegna þessara verkefna, svo sem þróunar, prófana, reksturs og viðhalds hugbúnaðar, vélbúnaðar og samskiptakerfa?
     7.      Hefur verið gerð grein fyrir kostnaði við verkefnin í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013? Verður gert ráð fyrir honum í útgjaldaáætlun fyrir 2014 og í áætlun um ríkisfjármál, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum fyrir hvern lið, þ.m.t. áætlaður eða fyrirhugaður kostnaður.


Skriflegt svar óskast.

Greinargerð.


    Samningsafstaða Íslendinga í 29. kafla, um tollabandalag, hefur nýlega verið afgreidd af hálfu ríkisstjórnarinnar og send Evrópusambandinu. Þar eru gefnar skuldbindandi yfirlýsingar um aðlögun og formlegan undirbúning aðildar í þessum málaflokki. Efni 29. kafla, um tollabandalag, er ekki hluti af EES- samningnum og stofnanarammi, bókhalds- og tölvukerfi ESB á þessu sviði eru allt annars konar en nú er hér á landi. Skuldbindandi yfirlýsingum og aðlögun íslenskra stjórnvalda er því beinlínis ætlað að uppfylla kröfur ESB í samningaviðræðunum: „Ísland mun hafa innleitt að fullu allt regluverk sem út af stendur og komið á nauðsynlegum stofnanaramma og upplýsingatæknikerfum við aðild.“ Mikilvægt er að kostnaðarmat á slíkum loforðum liggi fyrir áður en þau eru gefin.