Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 435. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 543  —  435. mál.


                                  

Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um dótturfélög Seðlabanka Íslands.

Frá Margréti Tryggvadóttur.


     1.      Hver er fjöldi, heiti og kennitölur allra dótturfélaga í heildarsamstæðu Seðlabanka Íslands og Eignasafns Seðlabanka Íslands?
     2.      Hver er tilgangur Seðlabanka Íslands með stofnun og rekstri hvers þessara dótturfélaga um sig?
     3.      Hverjir sitja í stjórnum dótturfélaga Seðlabanka Íslands og hvaða reglur gilda um skipanir í slíkar stöður og launakjör?
     4.      Hver eru tengsl Seðlabanka Íslands eða dótturfélaga við Dróma hf., þ.m.t. eignatengsl, kröfutengsl, stjórnunartengsl og samningssamband?


Skriflegt svar óskast.