Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 450. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 564  —  450. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um þjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum.


Flm.: Guðrún Erlingsdóttir, Atli Gíslason, Árni Johnsen, Eygló Harðardóttir,
Margrét Tryggvadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson.


    Alþingi ályktar að fela velferðarráðherra að skipa vinnuhóp sem kanni möguleika á aukinni þjónustu Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum í því skyni að nýta betur þekkingu starfsmanna, húsnæði og tækjakost stofnunarinnar með samstarfi við önnur sjúkrahús.

Greinargerð.

    Með tilkomu Landeyjahafnar og þeirra samgöngubóta sem henni fylgdu er mögulegt að efla og stækka þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
    Með tillögu þessari er lagt til að velferðarráðherra verði falið að skipa vinnuhóp sem kanni sóknarmöguleika stofnunarinnar til þess að nýta betur þekkingu starfsmanna, húsnæði og tækjakost með samstarf við önnur sjúkrahús á landinu í huga.
    Með slíkri samvinnu væri unnt að tryggja betur öryggi heimamanna og þá grunnþjónustu sem nauðsynleg er vegna landfræðilegrar sérstöðu Vestmannaeyja. Auk þess gæfust möguleikar á aukinni þjónustu við íbúa nágrannasveitarfélaganna og aðra landsmenn í samstarfi við önnur sjúkrahús.
    Síðustu ár hefur orðið ákveðin þróun í átt til sérhæfingar í heilbrigðisþjónustu. Einstök sjúkrahús hafa sérhæft sig á vissum sviðum. Í ljósi breyttra aðstæðna er kjörið að skoða Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í því samhengi.
    Flutningsmenn telja könnun á sóknarmöguleikum Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja mjög brýna, sérstaklega á tímum niðurskurðar og hagræðingar þegar nauðsynlegt er að leita allra leiða til þess að ná fram hagkvæmni og sparnaði, sem og að nýta betur húsnæði, tæki og þá víðtæku þekkingu sem starfsfólk býr yfir. Því telja flutningsmenn nauðsynlegt að vinna við þessa könnun hefjist nú þegar þannig að unnt verði að nýta niðurstöðurnar til að hefja megi hið fyrsta hagræðingu innan stofnunarinnar og auka þjónustu.