Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 386. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 577 — 386. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar bújarðir á landinu eru í eigu erlendra aðila, þ.e. einstaklinga eða fyrirtækja sem eru að meiri hluta með erlent eignarhald?
2. Hver hefur verið þróun eignarhalds erlendra aðila á bújörðum undanfarin tíu ár?
3. Hefur ríkisstjórnin í hyggju að takmarka eignarhald erlendra aðila á landi og ef svo er, hvenær má vænta lagafrumvarps þess efnis?
Ráðuneytið leitaði til Þjóðskrár Íslands um upplýsingar varðandi 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Fram kemur í svari Þjóðskrár að hugtakið bújörð sé ekki skilgreint í lögum heldur sé fasteignaskráning lands flokkuð í jörð, lóð eða þjóðlendu. Fjöldi jarðarfærslna (fasteign af gerðinni jörð) í Þjóðskrá Íslands þar sem einstaklingar með erlent ríkisfang eru skráðir meðal eigenda er eftirfarandi:
Þróun skráningar einstaklinga sem eigenda jarða í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands undanfarin tíu ár, með tilliti til ríkisfangs, hefur verið þannig háttað:
Hvað varðar 3. tölul. fyrirspurnarinnar hefur ráðherra áform um að flytja frumvarp til breytinga á jarða- og ábúðarlögum á vorþingi þar sem m.a. verði settar skorður við möguleikum til jarðasöfnunar og hugað sérstaklega að skilyrðum fyrir eignarhaldi erlendra aðila.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 577 — 386. mál.
Svar
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar
um eignarhald bújarða.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar bújarðir á landinu eru í eigu erlendra aðila, þ.e. einstaklinga eða fyrirtækja sem eru að meiri hluta með erlent eignarhald?
2. Hver hefur verið þróun eignarhalds erlendra aðila á bújörðum undanfarin tíu ár?
3. Hefur ríkisstjórnin í hyggju að takmarka eignarhald erlendra aðila á landi og ef svo er, hvenær má vænta lagafrumvarps þess efnis?
Ráðuneytið leitaði til Þjóðskrár Íslands um upplýsingar varðandi 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Fram kemur í svari Þjóðskrár að hugtakið bújörð sé ekki skilgreint í lögum heldur sé fasteignaskráning lands flokkuð í jörð, lóð eða þjóðlendu. Fjöldi jarðarfærslna (fasteign af gerðinni jörð) í Þjóðskrá Íslands þar sem einstaklingar með erlent ríkisfang eru skráðir meðal eigenda er eftirfarandi:
Erlent eignarhald á jörðum – samantekt (sjá nánar í viðauka).
| Fjöldi jarða í fasteignaskrá 15.11.2012 | 7.607 | |
| Fjöldi jarða þar sem einstaklingur með erlent ríkisfang er eigandi eða meðal eigenda | 101 | 1,33% |
| Þar af í 100% eigu erlends einstaklings eða erlendra einstaklinga | 28 | 0,37% |
Þróun skráningar einstaklinga sem eigenda jarða í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands undanfarin tíu ár, með tilliti til ríkisfangs, hefur verið þannig háttað:
Fjöldi jarðafærslna sem urðu í 100% eigu einstaklings/a
með erlent ríkisfang árin 2003–2012.
| 2003 | 4 |
| 2004 | 4 |
| 2006 | 6 |
| 2007 | 1 |
| 2008 | 1 |
| 2009 | 3 |
| 2010 | 0 |
| 2011 | 1 |
| 2012 | 1 |
| Samtals | 21 |
Hvað varðar 3. tölul. fyrirspurnarinnar hefur ráðherra áform um að flytja frumvarp til breytinga á jarða- og ábúðarlögum á vorþingi þar sem m.a. verði settar skorður við möguleikum til jarðasöfnunar og hugað sérstaklega að skilyrðum fyrir eignarhaldi erlendra aðila.
Viðauki.
| Eignarhlutar jarða (heild) | ||
| Í eigu einstaklings | 17.223 | |
| Í eigu fyrirtækja | 2.685 | |
| Í eigu gervikennitalna | 99 | |
| Upplýsingar vantar | 43 | |
| Í eigu húseigenda | 1 | |
| Samtals | 20.051 | |
| Eigendur eignarhluta jarða (hver kennitala talin einu sinni) | ||
| Einstaklingur | 11.971 | |
| Fyrirtæki | 924 | |
| Gervikennitala | 97 | |
| Upplýsingar vantar | 1 | |
| Húseigendur | 1 | |
| Samtals | 12.994 | |
| Um eigendafjölda (eftir jörðum) | ||
| Fjöldi jarða í fasteignaskrá: | 7.607 | |
| Fjöldi jarða í eigendaskrá* | 7.606 | |
| Fjöldi jarða með einn eiganda | 2.941 | 38,67% |
| > 1 eigandi | 4.666 | 61,35% |
| > 2 eigendur | 2.039 | 26,81% |
| > 3 eigendur | 1.332 | 17,51% |
| > 4 eigendur | 711 | 9,35% |
| Fjöldi jarða með > 5 eigendur | 533 | 7,01% |
| > 10 eigendur | 195 | 2,56% |
| > 20 eigendur | 56 | 0,74% |
| > 30 eigendur | 23 | 0,30% |
| > 40 eigendur | 10 | 0,13% |
| > 50 eigendur | 4 | 0,05% |
| *Ein jörð kemur ekki fram í eigendaskrá fasteignaskrár (2 persónur íslenskar) | ||
| Um samsetningu eignarhalds jarða I | ||
| Í eigu tveggja eða fleiri einstaklinga | 3.773 | |
| Í eigu einstaklings | 1.676 | |
| Í eigu fyrirtækis | 1.254 | |
| Í eigu einstaklinga og fyrirtækja | 466 | |
| Í eigu eins eða fleiri fyrirtækja | 366 | |
| Í eigu einstaklinga, fyrirtækja og gervikennitalna | 42 | |
| Í eigu einstaklinga og gervikennitalna | 27 | |
| Í eigu gervikennitalna | 2 | |
| Samtals | 7.606 | |
| Um samsetningu eignarhalds jarða II | ||
| Í eigu hóps einstaklinga með íslenskt ríkisfang | 3.710 | 48,78% |
| Í eigu einstaklings með íslenskt ríkisfang | 1.655 | 21,76% |
| Í eigu fyrirtækis | 1.254 | 16,49% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með íslenskt ríkisfang og fyrirtækja | 456 | 6,00% |
| Í eigu fleiri en eins fyrirtækis | 366 | 4,81 |
| Blandað eignarhald einstaklinga með ýmist íslenskt eða erlent ríkisfang | 56 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með ísl. ríkisfang, fyrirtækja og gervikennitölu/talna | 39 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með íslenskt ríkisfang og gervikennitölu/talna | 23 | < 1% |
| Í eigu einstaklings með erlent ríkisfang | 21 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga ýmist með ísl. eða erl. ríkisfang og fyrirtækja | 7 | < 1% |
| Í eigu hóps einstaklinga með erlent ríkisfang | 7 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með erlent ríkisfang og fyrirtækja | 3 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga ýmist með ísl. eða erl. ríkisfang, fyrirtækja og gervikennitalna | 3 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með erlent ríkisfang og gervikennitölu/talna | 2 | < 1% |
| Í eigu gervikennitölu/talna | 2 | < 1% |
| Blandað eignarhald einstaklinga með ýmist íslenskt eða erlent ríkisfang og gervikennitölu | 2 | < 1% |
| Samtals | 7.606 | |