Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 318. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 607  —  318. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur um framkvæmdir
á Vestfjarðavegi (60) frá Bjarkalundi að Melanesi.


     1.      Hvenær er gert ráð fyrir að vinna við umhverfismat vegna framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) frá Bjarkalundi að Melanesi hefjist og hvenær er áætlað að henni ljúki?
    Undirbúningur að nýju mati á umhverfisáhrifum vegagerðar milli Bjarkalundar og Melaness hófst strax að lokinni fundaröð innanríkisráðherra með sveitarstjórnarmönnum á sunnanverðum Vestfjörðum en henni lauk í september 2011.
    Í júlí sl. auglýsti Vegagerðin drög að tillögu að matsáætlun og almenningi var gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Unnið hefur verið úr þeim athugasemdum sem bárust og verða þeim gerð skil í endanlegri tillögu að matsáætlun, en hún er langt komin í vinnslu.
    Áður en tillaga að matsáætlun verður lögð formlega fram til Skipulagsstofnunar mun Vegagerðin láta kanna matsskyldu eins af þeim valkostum sem eru til skoðunar. Er þar um að ræða svokallaða leið D1 en hún er sambærileg við leið D sem lögð var fram í fyrra mati á umhverfisáhrifum frá árinu 2005 að öðru leyti en því að reiknað er með jarðgöngum í stað vegar yfir Hjallaháls. Í úrskurði Skipulagsstofnunar árið 2006 var fallist á leið D með skilyrðum. Vegagerðin telur líklegt að leið D1 þurfi ekki að fara í matsferli þar sem umhverfisáhrif þessarar leiðar hljóti að teljast enn minni en leiðar D.
    Í áðurnefndum drögum að matsáætlun er gerð grein fyrir tímaáætlun matsvinnunnar. Gert er ráð fyrir að vinna við umhverfismatið standi fram á haust 2013. Álit Skipulagsstofnunar gæti þá legið fyrir í október 2013.

     2.      Hvaða valkostir verða teknir fyrir í umhverfismatinu á framangreindri leið?
    Í drögum að matsáætlun, sem send var út til umsagnar í júlí 2012, var fjallað um kosti A, A1, B, B1, D, D1, H, I, þ.e. átta kosti. Í öllum tilfellum er miðað við upphaf við Bjarkalund og enda við Skálanes.
    A: Fylgir Reykhólasveitarvegi (607) frá vegamótum Vestfjarðavegar (60) við Bjarkalund, fyrir Reykjanes. Þorskafjörður þveraður við mynni fjarðarins.
    A1: Liggur um Þorskafjörð austanverðan. Þorskafjörður þveraður við mynni fjarðarins. Jafnframt reiknað með tengingu við Reykhólasveitarveg (607).
    B: Þverar Þorskafjörð við Kinnarstaði, liggur út fjörðinn að vestan um Teigsskóg og Hallsteinsnes, þverar Djúpafjörð og Gufufjörð við fjarðarmynnin. Þessi lína var lögð fram í umhverfismat frá árinu 2005. Hafnað í úrskurði Skipulagsstofnunar. Heimiluð í úrskurði umhverfisráðherra með skilyrðum. Úrskurður ráðherra dæmdur ólöglegur í Hæstarétti.
    B1: Liggur í stórum dráttum sömu leið og B en breytt til þess að uppfylla skilyrði umhverfisráðherra. Jafnframt var tekið tillit til óska landeigenda varðandi val á leið B1. Helsta breyting frá línu B er færsla uppfyrir bæinn Gröf, liggur ofar í Teigsskógi og fjær bænum Hallsteinsnesi.
    D: Þverar Þorskafjörð við Kinnarstaði, liggur yfir Hjallaháls, um Djúpafjarðarbotn, yfir Ódrjúgsháls og þverar Gufufjörð miðjan. Þessi lína var lögð fram í umhverfismat frá árinu 2005. Skipulagsstofnun féllst á þessa leið með skilyrðum.
    D1: Liggur í stórum dráttum sömu leið og D nema gert er ráð fyrir jarðgöngum í gegnum Hjallaháls í stað þess að fara yfir hann.
    H: Þverar Þorskafjörð við Kinnarstaði, í jarðgöngum undir Hjallaháls, út Djúpafjörð að austanverðu, þverar Djúpafjörð og Gufufjörð við mynni þeirra.
    I: Liggur um Þorskafjörð austanverðan, þverar hann við mynni fjarðarins, um Hallsteinsnes og þverar Djúpafjörð og Gufufjörð við fjarðarmynnin. Jafnframt er reiknað með tengingu við Reykhólasveitarveg (607) á Reykjanesi.
    Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvaða leiðir verða teknar í umhverfismat í framhaldi af endanlegri tillögu að matsáætlun. Eftirfarandi liggur þó fyrir:
    Vegagerðin telur leiðir A og A1 ekki fýsilegar, sérstaklega vegna mikils kostnaðar.
    Leið D þarf ekki í mat þar sem fyrra mat gildir áfram. Hún er hins vegar ekki talin valkostur þar sem heimamenn og nærliggjandi sveitarfélög hafa algerlega hafnað þeirri leið og hafa gert kröfu um láglendisleið.
    Eins og fyrr segir verður kannað hvort leið D1 teljist matsskyld. Teljist hún matsskyld verður hún væntanlega tekin í nýtt mat.
    Innanríkisráðherra hefur ákveðið að leiðir B og B1 verði ekki lagðar fram til mats, m.a. vegna lagalegrar óvissu með hliðsjón af fyrra ferli og því óvíst hvort hægt verði að halda áfram með þá leið. Gæti frestað framkvæmdum um ókomin ár verði látið á þessa leið reyna. Þessi leið er hins vegar inni á staðfestu skipulagi sveitarfélagsins.

     3.      Hver er áætlaður kostnaður við framkvæmdir á þeirri leið sem umhverfismatinu er ætlað að ná yfir?
    Eftirfarandi tafla er birt á bls. 16 í fyrrgreindum drögum að matsáætlun.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     4.      Hver er áætlaður kostnaður við svokallaða leið B1?
    Sjá töflu í svari við 3. tölul.

     5.      Hvenær er áætlað að vinna hefjist við þessa vegagerð og hvenær er talið að henni verði lokið, miðað við samþykkta samgönguáætlun til tólf ára?
    Gert er ráð fyrir 3.200 m.kr. til vegagerðar á 2. tímabili (2015–2018) og 5.000 m.kr. til jarðgangagerðar undir Hjallaháls á 3. tímabili (2019–2022) áætlunarinnar, ef ekki verður valin önnur láglendisleið. Áætlað er að framkvæmdir geti hafist á árinu 2015, en lok framkvæmda ráðast af endanlegu leiðarvali, t.d. hvort jarðgangaleið verður valin.