Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 493. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 634  —  493. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða,
nr. 129/1997, með síðari breytingum (séreignarsparnaður, húsnæðislán).


Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson.



1. gr.

    Á eftir 9. gr. laganna kemur ný grein, 9. gr. a, svohljóðandi:
    Þar til rétthafi hefur náð 35 ára aldri er heimilt að iðgjöld sem greidd eru til vörsluaðila séreignarsparnaðar, hvort heldur er framlag launamanns eða mótframlag launagreiðanda, sbr. 3. og 4. mgr. 8. gr., renni beint, fyrir tilstilli viðkomandi vörsluaðila, til greiðslu húsnæðisskulda rétthafa, eftir því sem nánar er mælt fyrir um í ákvæði þessu.
    Óski rétthafi séreignarsparnaðar eftir því að iðgjöld renni til greiðslu húsnæðisskulda skv. 1. mgr., að hluta eða að fullu, skal hann leggja fram umsókn þess efnis hjá viðkomandi vörsluaðila. Með umsókn skal fylgja staðfest yfirlit yfir skuldir rétthafa ásamt veðbókarvottorði.
    Vörsluaðila er heimilt að taka þóknun fyrir þá þjónustu sem kveðið er á um í ákvæði þessu og skal sú þóknun að hámarki standa undir þeim kostnaði sem til fellur hjá vörsluaðila við að veita umrædda þjónustu.
    Skilyrði heimildar til að iðgjöld til séreignarsparnaðar renni til greiðslu húsnæðisskulda skv. 1. mgr. er að lán sem iðgjöld renna til greiðslu á séu tryggð með veði í íbúðarhúsnæði rétthafa og að rétthafi hafi ekki áður verið þinglýstur eigandi að íbúðarhúsnæði.
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um fyrirkomulag greiðslna samkvæmt ákvæði þessu.

2. gr.

    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    a. (I.)
    Þrátt fyrir ákvæði 11. og 12. gr. laganna er á tímabilinu frá 1. janúar 2013 til 31. desember 2015 vörsluaðila séreignarsparnaðar skv. 3.–5. mgr. 8. gr. heimilt að greiða út séreignarsparnað óski eigandi séreignarsparnaðar þess, skv. II. kafla, eftir því sem nánar er mælt fyrir um í ákvæði þessu.
    Skilyrði heimildar til tímabundinnar útgreiðslu séreignarsparnaðar skv. 1. mgr. er að útgreiðsla, að frádreginni greiðslu tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, renni beint, fyrir tilstilli viðkomandi vörsluaðila, til greiðslu lána tryggðra með veði í íbúðarhúsnæði rétthafa. Vörsluaðila er heimilt að inna greiðsluna af hendi með útgáfu skuldabréfs til þeirra aðila sem eiga að fá greiðslu, skattstjóri meðtalinn, og er þeim skylt að taka skuldabréfið sem greiðslu. Á skuldabréfinu skulu vera sömu kjör varðandi ávöxtun og greiðslur og rétthafinn hefði notið.
    Óski rétthafi séreignarsparnaðar eftir útgreiðslu skv. 1. mgr., að hluta eða að fullu, skal hann leggja fram umsókn þess efnis hjá viðkomandi vörsluaðila. Með umsókn skal fylgja staðfest yfirlit yfir skuldir rétthafa ásamt veðbókarvottorði.
    Vörsluaðila er heimilt að taka þóknun fyrir þá þjónustu sem kveðið er á um í ákvæði þessu og skal sú þóknun að hámarki standa undir þeim kostnaði sem til fellur hjá vörsluaðila við að veita umrædda þjónustu.
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um fyrirkomulag tímabundinnar útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt þessu ákvæði.

    b. (II.)
    Á tímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2017 gildir ákvæði 9. gr. a óháð aldri rétthafa og því hvort rétthafi hafi áður verið þinglýstur eigandi fasteignar.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu er komið til móts við skuldavanda heimilanna. Í fyrsta lagi er lagt til að við lögin bætist nýtt ákvæði, 9. gr. a, sem kveði á um að rétthafa séreignarsparnaðar verði heimilt að nýta iðgjöld til greiðslu húsnæðisskulda þar til 35 ára aldri er náð. Sérstök skilyrði þess að heimilt verði að nýta iðgjöldin til greiðslu húsnæðisskulda er að um fyrstu kaup viðkomandi rétthafa sé að ræða. Er hér sérstaklega horft til þess að skuldabréf sem útgefið er vegna fyrstu kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði eru undanþegin stimpilgjaldi skv. 2. mgr. 35. gr. a laga nr. 36/1978, um stimpilgjald. Ekki er hins vegar mögulegt að vísa að öllu leyti til þess ákvæðis þar sem undir heimild þessa frumvarps munu einnig falla lán sem rétthafi hefur yfirtekið við kaup á fyrstu íbúð og þarf því ekki að greiða stimpilgjald af slíkri yfirtöku. Eðlilegt verður hins vegar að telja að allir sitji við sama borð hvernig sem fyrstu húsnæðiskaup er fjármögnuð.
    Þá er lagt til að heimildin taki bæði til framlags launamanns sjálfs og framlags atvinnurekanda. Vilji rétthafi nýta sér heimildina þarf hann að sækja sérstaklega um hana til vörsluaðila þar sem fram komi að hve miklu leyti hann vilji að iðgjöld renni til greiðslu húsnæðisskulda en heimilt er að iðgjöldin renni að hluta eða að öllu leyti til greiðslu húsnæðisskulda. Með umsókn skal fylgja staðfest yfirlit yfir skuldir rétthafa ásamt veðbókarvottorði. Þá er í frumvarpinu heimild fyrir vörsluaðila til töku þjónustugjalda vegna umsýslu í kringum umsóknir sem og greiðslu iðgjalda til húsnæðisskulda og reglugerðarheimild fyrir ráðherra til setningar nánari reglna um framkvæmd ákvæðisins. Þá er einnig lagt til að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um að 9. gr. a gildi óháð aldri rétthafa og burtséð frá því hvort um fyrstu eign viðkomandi er að ræða, tímabundið frá 1. janúar 2013 til 31. desember 2017.
    Í öðru lagi er lögð til tímabundin heimild til útgreiðslu séreignarsparnaðar til greiðslu á húsnæðisskuldum rétthafa sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans. Tekið er tillit til þess að við útgreiðslu séreignarsparnaðar þarf að greiða tekjuskatt af útgreiðslunni. Lagt er til að rétthafi þurfi að sækja sérstaklega um útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt ákvæðinu til greiðslu húsnæðisskulda og að umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir skuldir rétthafa ásamt veðbókarvottorði.
    Ljóst er að einhver kostnaður kann að vera fólginn í umsýslu vörsluaðila séreignarsparnaðar við umsóknir um útgreiðslu séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðisskulda. Er því í 4. mgr. ákvæðisins lagt til að vörsluaðila verði heimilt að innheimta þjónustugjöld sem standi undir þeim kostnaði sem til verður hjá vörsluaðila við umsýslu umsókna og greiðslu séreignarsparnaðar. Þá er í 5. mgr. heimild fyrir ráðherra til setningar nánari reglna samkvæmt ákvæðinu.