Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 110. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 652  —  110. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um bókmenntasjóð og fleira,
nr. 91/2007 (Miðstöð íslenskra bókmennta).


Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Agnesi Guðjónsdóttur og Guðnýju Helgadóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Halldóru Jónsdóttur frá bókmenntasjóði og Kristján B. Jónasson og Egil Örn Jóhannsson frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Umsagnir bárust frá Bandalagi íslenskra listamanna, bókmenntasjóði, Félagi íslenskra bókaútgefenda, Íslenskri málnefnd, Rithöfundasambandi Íslands og Sögueyjunni Ísland.
    Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót sérstakri skrifstofu með heitinu Miðstöð íslenskra bókmennta sem ætlað er að taka við hlutverki skrifstofu bókmenntasjóðs en eitt meginmarkmið frumvarpsins er að skýra og efla kynningarhlutverk sjóðsins.
    Það er mat nefndarinnar að með frumvarpinu skapist styrkari lagastoð fyrir kynningu á íslenskum bókmenntum hér á landi sem og erlendis en tilurð frumvarpsins má rekja til þátttöku Íslands sem heiðursgests á bókasýningunni í Frankfurt haustið 2011. Nefndin áréttar þó að brýnt er að tryggja nægilegar fjárveitingar til verkefnisins svo að miðstöð íslenskra bókmennta verði gert kleift að sinna hlutverki sínu og áfram verði stuðlað að öflugri kynningu á íslenskum bókmenntum á erlendri grund. Nefndin vekur sérstaka athygli á því að mikil þörf er fyrir frekari stuðning við metnaðarfulla íslenska bókaútgáfu, en styrkir til útgáfu og þýðinga innan lands hafa dregist mjög saman frá því sem var hjá fyrirrennurum bókmenntasjóðs. Metnaðarfullar áætlanir um áframhald Sögueyjunnar Íslands og nauðsynlegar aðgerðir til að hlúa að innviðum íslenskrar bókmenningar kalla til framtíðar á mun öflugri stuðning en talað er um í kostnaðarumsögn fjárlagaskrifstofu um frumvarpið. Það er mat nefndarinnar að fjölbreytt og öflugt starf og traust fjármagn til frambúðar hér heima fyrir sé undirstaða sóknar á erlendum vettvangi.
    Í nefndinni var talsvert rætt um starfsumhverfi íslenskra bókmennta og bókaútgáfu til framtíðar m.a. með hliðsjón af örum tæknibreytingum hin síðari ár. Með hliðsjón af þessu leggur nefndin til nýtt bráðabirgðaákvæði þar sem verði kveðið á um skipun samráðshóps sem skili ráðherra skýrslu fyrir 1. september 2013. Þar skuli koma fram tillögur og mörkuð stefna til framtíðar um starfsumhverfi íslenskrar bókaútgáfu, miðlun og bókmenningu. Nefndinni verði m.a. falið að leggja fram tillögur um rafbókavæðingu, stafrænan aðgang almennings að höfundarréttarvörðu efni, kerfisbundin innkaup bókasafna, aðgengi almennings að prentuðum og rafrænum bókum, eflingu námsgagnaútgáfu og aukið aðgengi nemenda að innlendum námsbókum. Lagt er til að ráðherra verði heimilt að fela samráðsnefndinni frekari verkefni ef þörf er á.
    Nefndin leggur einnig til lítils háttar lagatæknilegar breytingar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

              Á eftir 1. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
     a.      (2. gr.)
             Í stað orðanna „4. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr., 1. málsl. 2. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. 5. gr. laganna kemur: 7. gr.
     b.      (3. gr.)
             Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
             Ráðherra skal skipa fimm manna samráðsnefnd. Félag íslenskra bókaútgefenda og Námsgagnastofnun tilnefna einn fulltrúa hvort. Ráðherra skipar þrjá fulltrúa án tilnefningar og skal einn þeirra vera formaður samráðsnefndarinnar. Skipun samráðsnefndarinnar gildir til 1. september 2013.
             Samráðsnefndin skal skila ráðherra skýrslu þar sem fjallað verði um framtíðarsýn og starfsumhverfi íslenskrar bókaútgáfu, miðlun og bókmenningu, kennsluefni og fagefni fyrir skóla og fyrirtæki, svo og almenna bókaútgáfu. Nefndinni verði m.a. falið að leggja fram tillögur og marka skýra stefnu um aukna rafbókavæðingu á Íslandi, stafrænan aðgang almennings að höfundarréttarvörðu efni, kerfisbundin innkaup bókasafna, greiðslur fyrir aðgengi almennings að prentuðum og rafrænum bókum, eflingu námsgagnaútgáfu og hvernig megi auka aðgengi nemenda að innlendum námsbókum. Ráðherra verði heimilt að fela samráðsnefndinni frekari verkefni ef þörf er á.

    Tryggvi Þór Herbertsson og Siv Friðleifsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Þorgerður K. Gunnarsdóttir og Birgitta Jónsdóttir skrifa undir álitið með fyrirvara. Fyrirvarinn felur í sér gagnrýni á að með frumvarpinu sé ekki farið í heildstæða endurskoðun á hagræðingu og sameiningu listasjóðanna og stofnana, sbr. tónlistarsjóð og bókmenntasjóð o.s.frv.


Alþingi, 28. nóvember 2012.


Björgvin G. Sigurðsson,
form.
Skúli Helgason,
frsm.
Þráinn Bertelsson.

Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, með fyrirvara.
Birgitta Jónsdóttir,
með fyrirvara.