Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 760 — 498. mál.
2. umræða.
Þetta frumvarp vekur upp mjög margar spurningar. Í fyrsta lagi vekur það spurningu um það sem fór greinilega úrskeiðis í rekstri stofnunarinnar á síðasta ári. Rekstrarhalli stofnunarinnar var um 250 millj. kr. á síðasta ári og er farin sú leið að leggja á viðbótargjald á næsta ári til að standa straum af því sem vanmetið var í rekstri stofnunarinnar á síðasta ári. Því þarf að svara hvað í rauninni hafi gerst í rekstri stofnunarinnar sem hafi leitt til um 25% framúrkeyrslu á rekstri hennar. Fjárveitingar voru áætlaðar í kringum 1 milljarður kr., en frumvarpið leggur til að bæta í tæpum 250 millj. kr.
Það sem vekur hins vegar kannski stærri spurningar er fyrir árið 2013. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir því að lækka útgjöld stofnunarinnar um 170 millj. kr. Ástæðan sem tilgreind er í greinargerð sem fylgir frumvarpinu er sú að umsvif stofnunarinnar séu að minnka og gert sé ráð fyrir að hún muni dragast saman á næsta ári í takt við fækkun mála. Meginþungi starfseminnar muni fyrst og fremst snúast um að ljúka samþykktum greiðsluaðlögunarmálum, auk þeirra mála sem talið er að berist til stofnunarinnar á árinu 2013. Þetta var sagt um miðjan september. Nú þremur mánuðum síðar komast menn skyndilega að þeirri niðurstöðu að óraunhæft sé að skera niður rekstur stofnunarinnar um 170 millj. kr. Allar væntingar um að við séum að ná utan um þennan greiðsluvanda eru greinilega runnar út í sandinn.
Það er ekki þannig að menn hafi náð utan um það sem menn hafa kallað skuldavanda heimilanna. Þessi vandamál eru til staðar og úrlausn er ekki í sjónmáli. Ekki aðeins á stofnunin eftir mörg ófrágengin mál heldur er ýmsum málum sem stofnunin hefur lokið afgreiðslu sinni ekki búið að ná fram vegna þess að tilsjónarmenn hafa ekki lokið uppgjöri þeirra. Hin endanlega úrlausn fyrir skuldarann er því ekki í höfn.
Enn fremur hefur komið fram að inn eru að koma mörg ný mál, einstaklingar sem ekki voru í vanda eru nú komnir í vanda. Það er ljóst af því sem hér er verið að gera að vonir manna í september um að við værum að ná utan um skuldavandann hafa ekki ræst. Við erum enn þá í miðju þessu feni. Það er auðvitað mesta áhyggjuefnið. Við þurfum að fá úr því skorið hvort þetta hafi verið vanmat af hálfu ráðuneytisins eða hvort þetta hafi verið sameiginlegt mat ráðuneytisins og stofnunarinnar.
Þetta leiðir hugann að því hvort við höfum verið á réttri braut með nálgun okkar á úrlausn á skuldavanda heimilanna. Auðvitað er þar margt ógert.
Heildarskuldalækkun heimilanna frá haustdögum 2008 er í kringum 200 milljarðar kr. Er hér um að ræða meðvitaða stefnu ríkisstjórnarinnar við að lækka skuldir heimilanna? Er þetta skjaldborgin sem boðuð var í Norræna húsinu vorið 2009? Er þetta afrakstur af pólitískri stefnumörkun og aðgerðum sem boðað hefur verið til, m.a. á grundvelli starfs umboðsmanns skuldara, með 110% leiðinni, sértækri skuldaaðlögun?
Þegar skoðaðar eru upplýsingar sem meðal annars koma fram í svari atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn sem nýlega var dreift á þingi (þskj. 575 í 72. máli) kemur á daginn að endurútreikningur erlendra fasteignalána nemur meira en 50% af þessari skuldalækkun, þ.e. 110 milljörðum kr., og endurútreikningur vegna erlendra bílalána nemur tæpum 40 milljörðum kr., samtals eru það 150 milljarðar kr. Um 75% af skuldalækkun heimilanna stafa af því að þessi lán voru ólögleg. Þessi lán mátti því ekki innheimta. Þetta var með öðrum orðum ekki pólitísk aðgerð heldur afleiðing af því að lög sem menn héldu að stæðust stóðust ekki.
Þannig er niðurfærslan á skuldum heimilanna að mestu leyti afleiðing af því að lánin voru í ósamræmi við lög.
Þá komum við að því sem hefur verið á borðum annars vegar stjórnvalda og hins vegar bankanna. Þetta er 110% leiðin og að hluta til sértæk skuldaaðlögun. Þessi hluti skuldalækkunarinnar er afrakstur stefnumótunar stjórnvalda og ákvarðana bankanna. Við getum því sagt að það sé skjaldborgin umtalaða og hún nemur um 25% af skuldalækkuninni.
Þegar við skoðum þessi mál í samhengi við það fjármagn sem varið er til embættis umboðsmanns skuldara er augljóst að tilefni er til þess að endurmeta þessar aðferðir. Ekki til að gera minna fyrir skuldug heimili, þvert á móti, heldur til að sjá hvort við getum ekki farið einhverjar aðrar og skjótvirkari leiðir.
Nú er fullt tilefni til mikils endurmats. Það verður hins vegar ekki gert við afgreiðslu þessa máls. En augljóst er að slíkt endurmat er óhjákvæmilegt í ljósi þess að skuldalækkun heimilanna á að langmestu leyti rætur sínar að rekja til ólöglegra gengislána, kostnaður við rekstur umboðsmanns skuldara er mikill og í raun langt umfram þær áætlanir sem gerðar hafa verið um rekstur embættisins og birtast í fjárlögum. Markmið slíks endurmats hlýtur að vera að leita annarra og skjótvirkari leiða til þess að ná því markmiði að lækka skuldir heimila sem búa við mikla skuldabyrði.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 760 — 498. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 166/2011, um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara (breyting á hlutfalli af álagningarstofni).
Frá minni hluta velferðarnefndar.

Alþingi, 18. desember 2012.
Einar K. Guðfinnsson,
frsm.
Unnur Brá Konráðsdóttir.