Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 258. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 833 — 258. mál.
1. Í stjórnum hvaða félaga í eigu Seðlabanka Íslands situr seðlabankastjóri?
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands situr seðlabankastjóri ekki í stjórnum neinna félaga í eigu Seðlabanka Íslands.
Til upplýsingar má geta þess að seðlabankastjóri var stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) og Sölvhóls frá stofnun þeirra í lok árs 2009 þar til hann lét af störfum á aðalfundi ESÍ og Sölvhóls í mars 2012.
2. Hver er afstaða ráðherra til þessarar stjórnarsetu seðlabankastjóra?
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands situr seðlabankastjóri ekki í stjórnum neinna félaga í eigu Seðlabanka Íslands. Ráðherra tekur undir þá skoðun að óheppilegt sé að seðlabankastjóri sitji í stjórn félaga í eigu bankans.
3. Hvernig hefur ráðherra brugðist við þeirri afstöðu Ríkisendurskoðunar til stjórnarsetu seðlabankastjóra sem kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fyrirgreiðslu ríkisins til fjármálafyrirtækja og stofnana eftir efnahagshrunið?
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram skoðun stofnunarinnar að seta seðlabankastjóra í stjórn þeirra félaga sem bankinn á að fullu eða miklu leyti væri óheppileg enda mikilvægt að stjórnun Seðlabankans hvað varðar lögbundin verkefni hans sé í einu og öllu óháð hagsmunum hans af eignaumsýslu. Þegar skýrslan kom út í júní 2012 hafði seðlabankastjóri þegar látið af störfum sem stjórnarformaður ESÍ og Sölvhóls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 833 — 258. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur
um setu seðlabankastjóra í stjórnum félaga í eigu Seðlabanka.