Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 416. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 837 — 416. mál.
Héraðsdómara sem er skipaður til setu í rannsóknarnefnd skal veitt leyfi frá störfum dómsins meðan nefndin starfar. Ríkisstarfsmenn skulu enn fremur eiga rétt á launalausu leyfi þann tíma sem rannsóknarnefnd starfar. Leyfi sem veitt er hefur ekki áhrif á önnur starfsréttindi, þar á meðal aðild að lífeyrissjóði.
Verði nefndarmaður forfallaður eða ef hann getur ekki af öðrum ástæðum sinnt starfinu getur forseti Alþingis skipað annan mann til þess að taka sæti í nefndinni.
Gögn skulu afhent á því formi sem rannsóknarnefnd ákveður innan tilgreinds tíma og án endurgjalds. Þegar krafa beinist að aðila sem er til rannsóknar, sbr. 3. og 5. mgr. 5. gr., og þegar sérstaklega stendur á, getur rannsóknarnefnd ákveðið að kostnaður af afhendingu gagna greiðist að hluta eða að öllu leyti af nefndinni, sbr. 3. mgr. 3. gr.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 837 — 416. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011.
(Eftir 2. umræðu, 21. desember.)
1. gr.
Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Héraðsdómara sem er skipaður til setu í rannsóknarnefnd skal veitt leyfi frá störfum dómsins meðan nefndin starfar. Ríkisstarfsmenn skulu enn fremur eiga rétt á launalausu leyfi þann tíma sem rannsóknarnefnd starfar. Leyfi sem veitt er hefur ekki áhrif á önnur starfsréttindi, þar á meðal aðild að lífeyrissjóði.
Verði nefndarmaður forfallaður eða ef hann getur ekki af öðrum ástæðum sinnt starfinu getur forseti Alþingis skipað annan mann til þess að taka sæti í nefndinni.
2. gr.
Á eftir 6. mgr. 7. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Gögn skulu afhent á því formi sem rannsóknarnefnd ákveður innan tilgreinds tíma og án endurgjalds. Þegar krafa beinist að aðila sem er til rannsóknar, sbr. 3. og 5. mgr. 5. gr., og þegar sérstaklega stendur á, getur rannsóknarnefnd ákveðið að kostnaður af afhendingu gagna greiðist að hluta eða að öllu leyti af nefndinni, sbr. 3. mgr. 3. gr.
3. gr.
Á eftir 13. gr. laganna kemur ný grein, 13. gr. a, sem orðast svo, ásamt fyrirsögn:Skaðleysi nefndarmanna.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 3. gr. (13. gr. a) tekur jafnframt til þeirra nefndarmanna sem skipaðir hafa verið fyrir gildistöku laga þessara á grundvelli laga um rannsóknarnefndir.