Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 552. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 935  —  552. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um flutning réttargeðdeildar frá Sogni að Kleppi.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Hver var stofnkostnaður við flutning réttargeðdeildarinnar frá Sogni að Kleppi og var hann í samræmi við áætlaðan stofnkostnað þess verkefnis?
     2.      Hver var áætlaður kostnaðarlegur ávinningur árið 2012 og hver var hann í reynd? Hver er áætlaður ávinningur árið 2013?
     3.      Hvert er mat ráðherra á flutningnum að öðru leyti en kostnaðarlegum þáttum?


Skriflegt svar óskast.