Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 568. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 966  —  568. mál.




Fyrirspurn



til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um Bjargráðasjóð og
bætur vegna tjóns af völdum óvenjulegs veðurfars.

Frá Margréti Tryggvadóttur.


     1.      Hverjar eru eignir og skuldbindingar Bjargráðasjóðs? Svarið óskast sundurliðað eftir sjóðsdeildum.
     2.      Hvernig reiknar sjóðurinn bætur vegna tjóns á búfé af völdum óvenjulegs veðurfars? Svarið óskast sundurliðað eftir búfjártegundum.
     3.      Gætir samræmis í útreikningi bóta vegna tjóns á búfé? Sé svarið neikvætt er þess óskað að forsendur mismunandi útreikninga verði raktar.
     4.      Á hvaða röksemdum hefur ríkisstjórnin byggt ákvarðanir um að leggja Bjargráðasjóði til aukið fé til að greiða bætur vegna tjóns á búfé af völdum óvenjulegs veðurfars?


Skriflegt svar óskast.