Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 16. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 972  —  16. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu



um tillögu til þingsályktunar um skipun rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða.

Frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.


    Tillögunni var vísað til nefndarinnar með athugasemd m.a. um að nefndin hefði ekki skilað áliti um skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóðanna frá 3. febrúar 2012 sem unnin var af þriggja manna nefnd sem samtökin skipuðu.
    Meiri hlutinn áréttar að eins og óskað var eftir í bréfi forseta Alþingis 14. mars 2012 var m.a. fjallað um skýrsluna á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem nefndarmönnum í efnahags- og skattanefnd og fjárlaganefnd var boðið að sitja hinn 17. apríl 2012 og opinn var fjölmiðlum. Á fundinn komu Hrafn Bragason, Guðmundur Heiðar Frímannsson og Héðinn Eyjólfsson og Arnar Sigmundsson og Þórey S. Þórðardóttir frá Landssamtökum lífeyrissjóða sem fóru yfir skýrsluna og svöruðu spurningum nefndarmanna. Niðurstaða skýrslunnar staðfesti að mati stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að tilefni er til að ráðast í sjálfstæða, óháða rannsókn með þeim valdheimildum sem rannsóknarnefndum á vegum Alþingis eru fengnar samkvæmt lögum um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011, og flutti nefndin tillögu til þingsályktunar um skipun rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða (þskj. 1397, 811. mál) á 140. löggjafarþingi. Í greinargerð með tillögunni var vísað til ályktunar Alþingis frá 28. september 2010, nr. 29/138, um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem samþykkt var að ráðist yrði í sjálfstæða og óháða rannsókn á vegum Alþingis á starfsemi lífeyrissjóða á Íslandi frá setningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, og var sú samþykkt gerð eftir að nefnd lífeyrissjóðanna var skipuð.
    Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar endurflutti tillöguna með sömu röksemdum og telur að sú rannsókn sem hér er lögð til sé umfangsmeiri og ítarlegri en sú úttekt sem nefnd Landssamtaka lífeyrissjóða vann og því nauðsynlegt að fela rannsóknarnefnd verkefnið með þeim heimildum sem henni eru veittar samkvæmt lögum um rannsóknarnefndir en ítrekar það sem fram kemur í greinargerð að skýrsla Landssamtakanna mun nýtast vel við slíka rannsókn.
    Meiri hlutinn leggur til að rannsóknin nái til ársloka 2012 í stað 2011 eins og lagt er til í tillögunni og enn fremur að rannsóknarnefndin skili forseta Alþingis skýrslu um rannsóknina eigi síðar en 1. febrúar 2014 í stað 1. nóvember 2013.
    Meiri hlutinn telur að þar sem þegar er unnið að tveimur rannsóknum á vegum þingsins sé rétt að hafinn verði undirbúningur að þessari rannsókn á vegum þingsins m.a. með gerð kostnaðaráætlunar fyrir verkefnið þannig að unnt verði að hefja hana þegar annarri yfirstandandi rannsókninni er lokið.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „til ársloka 2011“ í 1. mgr. komi: til ársloka 2012.
     2.      Í stað orðanna „1. nóvember 2013“ í lokamálsgrein komi: 1. febrúar 2014.

Alþingi, 31. janúar 2013.



Valgerður Bjarnadóttir,


form., frsm.


Álfheiður Ingadóttir.


Lúðvík Geirsson.



Oddný G. Harðardóttir.


Vigdís Hauksdóttir.


Margrét Tryggvadóttir.