Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 430. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 990  —  430. mál.




Svar



fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um kostnað við skattamál
í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.


     1.      Hver er áætlaður tímaskiptur kostnaður við aðlögunarvinnu íslenskra stjórnvalda að Evrópusambandinu vegna 16. samningskafla aðildarviðræðnanna um skattamál, m.a. við:
                  a.      starfshóp um endurskoðun laga um virðisaukaskatt sem undirbýr nauðsynlega löggjöf til að samræma virðisaukaskattslöggjöf á Íslandi við regluverk Evrópusambandsins og rita lokaskýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra til samþykktar fyrir lok árs 2013 ásamt ítarlegri tíma- og aðgerðaáætlun,
                  b.      starfshóp um endurskoðun laga um vörugjöld sem undirbýr nauðsynlegar lagabreytingar til að eyða ósamræmi milli íslenskrar skattalöggjafar um orkuvörur og reglna sem kveðið er á um í tilskipun 2003/96/EB,
                  c.      vinnuhóp um undirbúning mögulegs flutnings á umsjón með vörugjaldi af innlendum framleiðsluvörum frá ríkisskattstjóra til tollstjóra og aðgerðaáætlun þar um,
                  d.      vinnu vegna heildstæðrar aðgerðaáætlunar til að efla stjórnsýslu- og framkvæmdagetu íslenskra skattyfirvalda með það að markmiði að þau verði tilbúin í síðasta lagi á aðildardegi,
                  e.      vinnu á vegum ríkisskattstjóra við að semja framkvæmdaáætlun með tíma- og aðgerðaáætlun til að gera kerfi rekstrarsamhæfð og samtengjanleg kerfum Evrópusambandsins í samræmi við kröfur þess, þ.m.t. þjálfun starfsmanna?
    Undirbúningur að vinnu við þau verkefni sem tilgreind eru í a-, b-, d- og e-lið er á frumstigi og þar af leiðandi liggja ekki fyrir neinar tíma- eða aðgerðaáætlanir hvað þau varðar. Gert er ráð fyrir að þessi verkefni rúmist innan fjárheimilda ráðuneytisins og þeirra stofnana sem að málinu þurfa að koma. Til svars við c-lið þá hafa þegar verið samþykkt á Alþingi lög sem fela í sér tilflutning á stjórnsýslu vörugjalds af innlendum framleiðsluvörum frá ríkisskattstjóra til tollstjóra frá og með 1. mars 2013 og var það sjálfstæð ákvörðun óháð aðildarviðræðunum.

     2.      Eru fleiri hópar en framangreindir að vinnu vegna skattamála í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusambandinu, til að mynda um þverlæg málefni?
    Ekki svo vitað sé.

     3.      Hverjir eru áfangar í vinnu hópanna og hver eru tímamörk þeirra, er vinnan hafin, hvenær á henni að ljúka og hvenær er gert ráð fyrir að innleiðingu verði lokið?
    Vísað er til svars við 1. tölul.

     4.      Hefur ráðuneytið metið kostnað við þessi tímasettu loforð í heild sinni, liggur matið fyrir, og hvar er gerð grein fyrir þeim kostnaði í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013? Verður gert ráð fyrir honum í útgjaldaáætlun fyrir 2014 og í áætlun um ríkisfjármál, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis?
    Til svars við þessum lið fyrirspurnarinnar vill ráðuneytið einungis árétta það sem fram kemur í 1. tölul. að engar tíma- eða aðgerðaáætlanir varðandi þau verkefni sem falla undir 16. samningskafla liggja enn fyrir, enn fremur að kostnaður vegna þeirrar vinnu mun rúmast innan fjárheimilda ráðuneytisins og stofnana þess á árinu 2013, sbr. fjárlög, án þess að til hafi komið sérstök fjárveiting. Gert er ráð fyrir að þeirri áætlunargerð sem um er spurt ljúki á árinu 2013.