Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 433. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 993  —  433. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um kostnað
við breytingar á tölvukerfum á sviði beinna skatta í tengslum
við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.


     1.      Hver er kostnaðurinn við aðlögunarvinnu íslenskra stjórnvalda að Evrópusambandinu vegna breytinga á tölvukerfum á sviði beinna skatta vegna 16. samningskafla aðildarviðræðnanna um skattamál, m.a. við:
                  a.      aðlögun á upplýsingatæknikerfi til að gera upplýsingaskipti möguleg um tekjur fólks með aðsetur erlendis af sparnaði (sbr. sparnaðartilskipun Evrópusambandsins),
                  b.      sjálfvirkt kerfi fyrir upplýsingaskipti um tekjur af sparnaði í formi vaxtagreiðslna með rafrænum og samræmdum hætti?

    Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafa enn sem komið er ekki verið gerðar breytingar á tölvukerfum embættisins eða verið lagt mat á þann kostnað sem slíkar breytingar kynnu að hafa í för með sér til þess að mæta þeim kröfum sem gerðar eru í sparnaðartilskipun Evrópusambandsins. Embættið hefur óskað eftir svokallaðri TAIEX-aðstoð frá Evrópusambandinu vegna þeirra tæknilegu breytinga sem gera þyrfti ef að aðild yrði. Fyrirhugað er að sú aðstoð komi til á öðrum ársfjórðungi 2013 eða síðar.

     2.      Eru fleiri slík verkefni við breytingar á tölvukerfum á sviði beinna skatta í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusambandinu en framangreind, til að mynda þverlæg?
    Ekki svo vitað sé.

     3.      Hver er kostnaðurinn við að efla stjórnsýslugetu embættis ríkisskattstjóra og tollstjóra vegna þessara verkefna á sviði tölvukerfa með ráðningum og þjálfun starfsmanna?
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hefur ekki verið kannað sérstaklega hvaða kostnaðarauki yrði á sviði beinna skatta vegna aðildar að Evrópusambandinu. Tölvukerfi á sviði beinna skatta varða ekki tollstjóraembættið.

     4.      Hvaða tæknibúnað þarf vegna þessara verkefna og í hvaða áföngum hefur verið lofað að taka hann upp miðað við tímasett loforð?
    Ekki liggur fyrir mat á því hvaða breytingar þyrfti að gera á tæknibúnaði embættis ríkisskattstjóra í þessu sambandi eða tímasett áfangaáætlun þar að lútandi.

     5.      Hverjir eru áfangar eða tímamörk fyrir verkefnin, eru vinna við þau hafin, hvenær á þeim að ljúka og hvenær er gert ráð fyrir að innleiðingu verði lokið?
    Vísað er til svars við 4. tölul.

     6.      Í hvaða tilvikum er stuðst við útvistunarsamninga vegna þessara verkefna, svo sem þróunar, prófana, reksturs og viðhalds hugbúnaðar, vélbúnaðar og samskiptakerfa?
    Vísað er til svars við 4. tölul.

     7.      Hefur verið gerð grein fyrir kostnaði við verkefnin í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013? Verður gert ráð fyrir honum í útgjaldaáætlun fyrir 2014 og í áætlun um ríkisfjármál, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis?
    Ekki er gert ráð fyrir sérstakri fjárveitingu til embættis ríkisskattstjóra vegna verkefna á sviði beinna skatta sem tengjast aðildarviðræðum Íslands við ESB í fjárlögum ársins 2013 eða langtímaáætlun um ríkisfjármál.