Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 434. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 994  —  434. mál.




Svar



fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um kostnað við breytingar á tölvukerfum á sviði tolla í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.


     1.      Hver er kostnaðurinn við aðlögunarvinnu íslenskra stjórnvalda að Evrópusambandinu vegna breytinga á tölvukerfum á sviði tolla vegna 29. samningskafla aðildarviðræðnanna um tollabandalag, m.a. við:
                  a.      aðlögun að sameiginlegri tollskrá Evrópusambandsins (CCT),
                  b.      rafrænt tollskrárkerfi Evrópusambandsins (TARIC),
                  c.      eftirlits- og innflutningskvótakerfið (TQS),
                  d.      sameiginlega samskiptanetið (CCN/CSI),
                  e.      hið nýja tölvukerfi fyrir umflutning (NCTS),
                  f.      hina samþættu stjórnun gjaldheimtukerfis (ITMS),
                  g.      útflutningseftirlitskerfið (ECS),
                  h.      innflutningseftirlitskerfið (ICS),
                  i.      kerfið fyrir viðurkennda rekstraraðila (EOS),
                  j.      önnur undirkerfi hins samræmda tollstjórnarkerfis (ITMS)?
    Undirbúningur að breytingum á tölvukerfum á sviði tollamála er þegar hafinn. Ákveðið hefur verið að hefja vinnu við tvö kerfi að svo stöddu, þ.e. tollskrárkerfið (TARIC) og umflutningskerfið (NCTS), sem nefnd eru í liðum a og e í 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Kostnaður við innleiðingu þessara tveggja kerfa, ásamt uppbyggingu þjónustulags til að auðvelda samtengingu við ný kerfi, hefur verið metinn samtals 12,8 milljónir evra, eða 2.200 millj. kr. Af þeirri upphæð er íslenskt framlag áætlað 6,8 milljónir evra, eða 1.150 millj. kr. Fjármögnun með IPA-styrkveitingu er áætluð 6 milljónir evra, eða um 1.000 millj. kr., en af þeirri upphæð er gert ráð fyrir að 2 milljónir evra, eða nálægt 350 millj. kr., verði í formi þjálfunarstyrks (sérfræðiheimsóknir frá ESB, heimsóknir íslenskra sérfræðinga til aðildarríkja). Gert er ráð fyrir að vinna við þessi tvö kerfi hefjist á árinu 2013. Rétt er að hafa í huga að það er löngu tímabært að endurnýja tölvukerfi tollstjóra frá grunni.

     2.      Eru fleiri verkefni vegna breytinga á tölvukerfum á sviði tolla í tengslum við aðildarumsókn að Evrópusambandinu en framangreind, til að mynda þverlæg?
    Líklegt er að fleiri kerfi komi til vegna aðildarumsóknar en vinna við þann undirbúning er ekki hafin.

     3.      Hver er kostnaðurinn við að efla stjórnsýslugetu embættis ríkisskattstjóra og tollstjóra vegna þessara verkefna á sviði tölvukerfa með ráðningum og þjálfun starfsmanna?
    Bætt hefur verið við 10 starfsmönnum hjá tollstjóra til að undirbúa upptöku þeirra kerfa sem eru tilgreind í liðum a og e í 1. tölul. Erfitt er að áætla nákvæmlega hver heildarkostnaður verður við þessi tvö kerfi. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013 er heildarkostnaður hjá tollstjóra á árinu 2013 við þau kerfi sem vinna er hafin við áætlaður 315,9 millj. kr.

     4.      Hvaða tæknibúnað þarf vegna þessara verkefna og í hvaða áföngum hefur verið lofað að taka hann upp miðað við tímasett loforð?
    Fjárfesta þarf í hugbúnaði og tölvubúnaði auk þjálfun starfsmanna og öðrum undirbúningi. Tímasett loforð hafa ekki verið gefin varðandi þetta verkefni.

     5.      Hverjir eru áfangar og tímamörk fyrir verkefnin, er vinna við þau hafin, hvenær á þeim að ljúka og hvenær er gert ráð fyrir að innleiðingu verði lokið?
    
Vísað er til svars í 4. lið hér að framan.

     6.      Í hvaða tilvikum er stuðst við útvistunarsamninga vegna þessara verkefna, svo sem þróunar, prófana, reksturs og viðhalds hugbúnaðar, vélbúnaðar og samskiptakerfa?
    Enn liggur ekki fyrir nákvæm greining á því að hve miklu leyti verður stuðst við útvistunarsamninga en reikna má með því að það verði gert í töluverðu mæli. Í þeim tilvikum þar sem stuðst verður við útvistun verður farið eftir almennum útboðsreglum ríkisins.

     7.      Hefur verið gerð grein fyrir kostnaði við verkefnin í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013? Verður gert ráð fyrir honum í útgjalda áætlun fyrir 2014 og í áætlun um ríkisfjármál, sbr. 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum fyrir hvern lið, þ.m.t. áætlaður eða fyrirhugaður kostnaður.

    Eins og að framan greinir er gert ráð fyrir kostnaði við þau tvö kerfi sem þegar er búið að ákveða að hefja vinnu við í fjárlögum fyrir árið 2013, samtals 200 millj. kr. Við þá fjárhæð bætist síðan IPA-styrkur upp á 115 millj. kr. þannig að heildarkostnaður við verkefnið verður 315 millj. kr. á árinu 2013. Eins og fram kemur á bls. 389 í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu, sem nú er orðið að lögum, er einnig gert ráð fyrir að veita 200 millj. kr. á ári næstu fimm árin vegna endurnýjunar tveggja tollakerfa af tíu í samræmi við verkáætlun tollstjóra.