Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 559. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1062  —  559. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um verktakasamninga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir hafa starfað á verktakasamningum í ráðuneytinu á tímabilinu 1. maí 2011 til 20. janúar 2013?

    Einn sjálfstætt starfandi einstaklingur hefur starfað sem verktaki með starfsaðstöðu í velferðarráðuneytinu á umræddu tímabili. Viðkomandi verktaki vann samtals 185 tíma á þessu tímabili að verkefnum sem snúa að þjónustustýringu og að skýrslu um kostnaðarbókhald heilbrigðisstofnana.