Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 483. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1094  —  483. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um innheimtulaun.


     1.      Hefur ráðherra gefið út leiðbeiningar handa lögmönnum skv. 3. mgr. 24. gr. laga nr. 77/1998 um endurgjald sem þeim sé hæfilegt að áskilja umbjóðendum sínum úr hendi skuldara vegna kostnaðar af löginnheimtu peningakröfu, sbr. 24. gr. a sömu laga? Ef svo er ekki, hvað líður þá samningu leiðbeininganna?
    Drög að leiðbeiningum handa lögmönnum skv. 3. mgr. 24. gr. laga um lögmenn liggja fyrir og voru send Lögmannafélagi Íslands til umsagnar í samræmi við ákvæði lögmannalaga. Félagið gerði athugasemdir við reglurnar. Hefur ráðuneytið þær athugasemdir til skoðunar.

     2.      Hefur ráðherra kannað hvort með tilkomu 24. gr. a laga nr. 77/1998, sbr. 7. gr. breytingalaga nr. 60/2010 sem tóku gildi 19. júní 2010, hafi orðið breyting á fjárhæð innheimtulauna lögmanna við innheimtu veðskulda þar sem eftirstöðvar hafa verið gjaldfelldar sökum vanefnda á greiðslu afborgana eða vaxta en þar sem greiðsla vanskila eða skuldarinnar allrar hefur farið fram án nauðungaruppboðs?
     3.      Hefur ráðherra kannað hvort innheimtukerfum lögmanna hafi verið breytt eftir gildistöku laga nr. 60/2010 og þá hvenær sú breyting átti sér stað?
    
Hvað varðar svar við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar bendir ráðherra á að eftirlit með starfsemi lögmanna er í höndum Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna sem tekur til meðferðar kvartanir þeirra sem telja að lögmaður hafi í starfi sínu gert á sinn hlut með háttsemi sem stríðir gegn lögum eða siðareglum lögmanna þ.m.t. ákvæði 24. gr. a um að við löginnheimtu sé lögmanni óheimilt að áskilja sér endurgjald af þeim hluta kröfu sem fallinn er í gjalddaga vegna gjaldfellingar eftirstöðva skuldar sökum vanefnda á greiðslu afborgunar eða vaxta.

     4.      Hafi framangreindar kannanir ekki verið gerðar, hvenær hyggst ráðherra þá kanna hvort lagabreytingunni hafi verið fylgt eftir í raun þegar innheimtu lýkur án nauðungaruppboðs?
    Hér vísast til þess sem fram kemur í svari við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar, að eftirlit með starfsemi lögmanna er ekki í höndum innanríkisráðherra. Ráðherra hefur hins vegar komið upplýsingum til Lögmannafélags Íslands um að fyrirspurn þessi hafi verið sett fram.

     5.      Hver var sú heildarfjárhæð sem sýslumenn á landinu úthlutuðu af söluandvirði seldra fasteigna sem skilgreindar eru sem íbúðarhúsnæði, til greiðslu innheimtulauna lögmanna vegna innheimtu veðskuldabréfa áhvílandi á þeim sömu eignum, á tímabilinu 19. júní 2009 til 18. júní 2010, á tímabilinu 19. júní 2010 til 18. júní 2011 og á tímabilinu 19. júní 2011 til 18. júní 2012? Svar óskast sundurliðað eftir sýslumannsembættum. Þá verði fjöldi úthlutunargerða tilgreindur.
    Í framhaldi af sömu fyrirspurn sem sett var fram á 140. löggjafarþingi sl. sumar óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá sýslumannsembættum landsins svo unnt væri að svara fyrirspurninni. Nokkur embætti tóku saman upplýsingar en önnur töldu sér ekki fært að gera slíkt. Kom fram hjá þeim embættum að verulegum erfiðleikum væri bundið að svara fyrirspurninni af ýmsum ástæðum en þó helst að ekki væri unnt að sækja í nauðungarsölukerfi sýslumanna slíkar upplýsingar þar sem kerfið geymdi ekki sérstaklega þær upplýsingar sem um væri beðið. Þá flokkaði kerfið ekki fasteignir niður eftir því hvort um væri að ræða íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði. Af því leiddi að fara yrði handvirkt í gegnum allar skjalamöppur nauðungarsölumála fasteigna á umræddum tímabilum til að finna þær eignir sem uppfylla skilyrðið um íbúðarhúsnæði en slíkt væri mikil vinna hjá flestum embættum sem ekki yrði ráðist í án töluverðs kostnaðar. Þá nægði ekki að skoða frumvörp til úthlutunar eins og fram kemur í fyrirspurninni þar sem þar komi aðeins fram heildarfjárhæðir en finna yrði til kröfulýsingar allra þeirra sem fengju úthlutað af söluverðinu. Þá var bent á að þegar aðeins greiðist upp í kröfu hæstbjóðanda á grundvelli veðskuldabréfs væri ekki á færi sýslumanna að ákvarða hvort innheimtuþóknun lögmanns hefði greiðst að fullu eða að tiltölu. Af því leiddi að svör við fyrirspurninni yrðu misvísandi í flestum tilfellum, þar sem algengast er að hæstbjóðandi bjóði aðeins inn í sinn veðrétt sem oftast er 1. veðréttur.
    Eftirfarandi eru svör þeirra sýslumannsembætta sem töldu sér fært að taka saman tölulegar upplýsingar:

Blönduós.
    Einungis eitt mál fellur undir úthlutunargerðir á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011. Söluandvirði var 26.000.000 kr. og innheimtuþóknun lögmanna samkvæmt veðskuldabréfinu 688.303 kr.

Búðardalur.
    Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 voru engar fasteignir, skilgreindar sem íbúðarhúsnæði, seldar.
    Á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011 voru átta fasteignir, skilgreindar sem íbúðarhúsnæði, seldar. Innheimtukostnaður lögmanna/lögfræðifyrirtækja nam 751.489 kr. Fjöldi úthlutunargerða var átta.

Eskifjörður.
    Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 voru 27 eignir seldar og nam innheimtukostnaður samkvæmt úthlutunargerðum, byggðum á kröfulýsingum, samtals 2.520.711 kr.
    Á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011 voru 74 eignir seldar og nam innheimtukostnaður samkvæmt úthlutunargerðum, byggðum á kröfulýsingum, samtals 3.463.054 kr.

Hólmavík.
    Engar úthlutunargerðir voru á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010.
    Ein úthlutunargerð var á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011. Til greiðslu innheimtulauna til lögmanna vegna innheimtu á veðskuldabréfum, sem á eigninni hvíldu, var ekki úthlutað neinni fjárhæð. Eini veðhafinn, sem fékk úthlutun af söluandvirði fasteignarinnar, var Íbúðalánasjóður og hann gerði ekki kröfu um greiðslu innheimtulauna á grundvelli laga nr. 77/1998.

Hvolsvöllur.
    Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 voru seldar lokasölu 19 íbúðir og á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011 voru seldar 8 íbúðir. Eignirnar voru allar seldar 1. veðréttarhafa sem var í langflestum tilfellum Íbúðalánasjóður og var því úthlutað að hluta upp í þá kröfu. Sýslumaður tók þá ekki sérstaklega afstöðu til innheimtulauna lögmanna vegna málanna.

Húsavík.
    Fjöldi úthlutunargerða vegna nauðungarsölu á fasteignum, sem teljast íbúðarhúsnæði í umdæminu, voru sex talsins á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 og sjö á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.
    Greiðsla innheimtulauna til lögmanna vegna innheimtu á veðskuldabréfum sem á slíkum eignum hvíldu var:
     –      Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010: 1.179.979 kr.
     –      Á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011: 524.587 kr.

Höfn.
    Á fyrra tímabilinu, 19. júní 2009–18. júní 2010, var úthlutað af söluandvirði seldra fasteigna, sem skilgreindar voru sem íbúðarhúsnæði, til lögmanna sem innheimtulaun 5.000 kr.
    Á seinna tímabilinu, 19. júní 2010–18. júní 2011, var úthlutað sams konar greiðslum til lögmanna að upphæð 94.320 kr.
    Það skal tekið fram að innheimtuþóknanir til Íbúðalánasjóðs eru inni í þessum tölum og er alfarið miðað við innheimtuþóknanir vegna veðskuldabréfa.

Ísafjörður.
    Ekki var um að ræða að greiddist upp í innheimtulaun lögmanna vegna innheimtu veðskuldabréfa í 21 uppboðsmáli vegna íbúðarhúsnæðis sem var til meðferðar á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010.
    Ekki var um að ræða að greiddist upp í innheimtulaun lögmanna vegna innheimtu veðskuldabréfa í 21 uppboðsmáli vegna íbúðarhúsnæðis sem var til meðferðar á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.

Patreksfjörður.
    Ekki var um að ræða að greiddist upp í innheimtulaun lögmanna vegna innheimtu veðskuldabréfa í þeim sex uppboðsmálum vegna íbúðarhúsnæðis sem voru til meðferðar á tilgreindu tímabili.

Sauðárkrókur.
    Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 voru þrjár íbúðir seldar. Í tveimur málum greiddust einungis lögveð en í þriðja málinu kom greiðsla upp í veðskuldabréf á fyrsta veðrétti. Óljóst er hve mikið af greiðslunni fór í innheimtukostnað lögmanna.
    Á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011 var ein íbúð seld þar sem lögveð greiddust upp ásamt því að eitthvað greiddist upp í veðskuldabréf á fyrsta veðrétti. Óljóst er hve mikið af greiðslunni fór í innheimtukostnað lögmanna.

Vestmannaeyjar.
    Heildarfjöldi úthlutunargerða á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 var tíu og sex á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.
    Fjöldi úthlutunargerða þar sem Íbúðalánasjóður fékk greitt samkvæmt úthlutunargerð á grundvelli veðskuldabréfs (hluti af ofangreindu) var sjö á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 og fjórar á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.
    Fjöldi úthlutunargerða þar sem innheimtulaun eru tilgreind og ekki er um að ræða Íbúðalánasjóð eða aðra opinbera eða hálf opinbera stofnun að ræða var fjórar á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010 og tvær á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.
    Einstök ofangreind tilvik (aðrir aðilar, t.d. bankar eða aðrir):
     1.      Á tímabilinu 19. júní 2009–18. júní 2010.
                  i.      Innheimtulaun 286.286 kr. af samþykktri fjárhæð veðhafans 7.274.110 kr., þar sem krafan greiddist öll af uppboðsandvirðinu.
                  ii.      Innheimtulaun 257.798 kr. af samþykktri fjárhæð 4.594.799 kr., þar sem greiddust 30,8% upp í viðkomandi kröfu, eða 1.416.747 kr. samkvæmt úthlutunargerð, en eigandi kröfu var jafnframt hæstbjóðandi og tók hana undir sjálfum sér.
                  iii.      Innheimtulaun 219.653 kr. af samþykktri fjárhæð 3.598.141 kr., þar sem einungis greiddust 2,4% upp í viðkomandi kröfu, eða kr. 86.277 samkvæmt úthlutunargerð, en eigandi kröfu var ekki hæstbjóðandi.
                  iv.      Innheimtulaun voru 151.154 kr. af samþykktri fjárhæð 2.484.232 kr., þar sem einungis greiddust 0,2% upp í viðkomandi kröfu, eða 4.697 kr. samkvæmt úthlutunargerð, en eigandi kröfu var jafnframt hæstbjóðandi og tók hana undir sjálfum sér.     
     2.      Á tímabilinu 19. júní 2010–18. júní 2011.
                  i.      Innheimtulaun 205.783 kr. af samþykktri fjárhæð 4.178.542 kr., þar sem einungis greiddust 1,7% upp í viðkomandi kröfu, eða 72.247 kr. samkvæmt úthlutunargerð, en eigandi kröfu var jafnframt hæstbjóðandi og tók hana undir sjálfum sér.
                  ii.      Innheimtulaun 80.510 kr. af samþykktri fjárhæð 2.394.288 kr., þar sem einungis greiddust 5,9% upp í viðkomandi kröfu, eða 141.408 kr. samkvæmt úthlutunargerð, en eigandi kröfu var jafnframt hæstbjóðandi og tók hana undir sjálfum sér.
    Þá tekur sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum fram til skýringar að algengt sé að Íbúðalánasjóður eða aðrar stofnanir innheimti sjálfar veðskuldabréf sín og algengast er að þá séu ekki tilgreind innheimtulaun lögmanns. Þá sé úthlutun til veðhafa oft hlutfallsleg þar sem þeir fá ekki alla kröfu sína greiddda og í þeim tilfellum sé erfitt að reikna út hver hluti uppboðsandvirðis rennur til innheimtulauna. Þá beri úthlutunargerð ekki alltaf með sér markaðsvirði eignar þar sem veðhafa nægi að bjóða upp í sinn veðrétt til að fá eignina slegna sér og því gefi samþykkt úthlutun ekki ávallt rétta mynd af þeim kostnaði sem greiðist af uppboðsandvirðinu heldur tekur hæstbjóðandi hana undir sjálfum sér.

Vík.
    Á þeim tímabilum sem spurt er um var ekkert íbúðarhúsnæði selt nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Vík.